Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1540574023.16

    Erfðafræði
    LÍFF3EF05
    26
    líffræði
    erfðafræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er fjallað um sögu erfðafræðinnar, stöðu hennar og mikilvægi í nútíma samfélagi. Farið er í helstu grunnhugtök og viðfangsefni erfðafræðinnar. Erfðafræðikenningar Mendels eru skoðaðar og tengdar við þekkingu okkar í dag. Mismunandi litninga- og genabreytingar eru kynntar. Próteinmyndun er rakin frá DNA og uppbygging erfðaefnisins skoðuð ítarlega. Virkni gena, erfðatækni og siðferði erfðarannsókna eru einnig umfjöllunarefni. Lögð er áhersla á að nemendur skilji hvernig erfðaefnið er uppbyggt, hvernig það flytur upplýsingar frá einni kynslóð til annarrar og hvernig einföld erfðalögmál virka. Áhrif erfðaefnis á fjölbreytileika lífvera og þróun er einnig áhersluatriði auk þess að nemendur þekki nokkra algengustu erfðasjúkdóma mannsins. Fjallað er um mikilvægi grundvallarþekkingar á erfðafræði í daglegu lífi, hraða þróun erfðatækni og möguleika framtíðarinnar.
    Lífeðlisfræði: LÍFF2LN05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - sögu og þróun erfðafræðinnar
      - kenningum Mendels og grunnhugtökum erfðafræðinnar
      - ferli frumuskiptinga, bæði mítósu og meisósu
      - byggingu erfðaefnis (DNA, RNA, gen, litningar)
      - afritun, umritun og þýðingu erfðaefnis
      - breytingum sem verða á erfðaefni
      - mismunandi erfðamynstrum og tjáningu gena
      - kynákvörðun lífvera og erfðum tengdum kynferði
      - ýmsum meingenum og erfðasjúkdómum
      - erfðum örvera
      - tengslum erfða, fjölbreytileika lífvera og þróunar
      - grundvallaratriðum í erfðatækni
      - siðferðislegum álitamálum erfðafræði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - beita grunnhugtökum erfðafræðinnar á skilmerkilegan hátt og í rökrænu samhengi
      - rekja einfaldar erfðir
      - finna út líkur á erfðum tengdra og ótengdra eiginleika
      - tengja saman basaröð í DNA, basaröð í RNA og amínósýruröð próteina
      - lesa erfðafræðilegar upplýsingar úr máli og myndum frá mismunandi miðlum
      - tjá sig um erfðafræðileg málefni á skýran og ábyrgan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - leggja mat á upplýsingar sem tengjast erfðafræðilegum viðfangsefnum á gagnrýninn hátt
      - taka þátt í umræðum um erfðafræðileg málefni daglegs lífs á ábyrgan og sjálfstæðan hátt
      - taka rökstudda afstöðu í álitamálum er varða erfðatækni og önnur erfðafræðileg málefni
      - afla sér frekari þekkingar á erfðafræðilegum viðfangsefnum
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.