Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1540574174.93

    Skógfræði
    LÍFF3SK05
    28
    líffræði
    skógfræði og plöntur
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Markmið áfangans er að nemendur kynnist viðfangsefnum grasafræðinnar / skógfræðinnar með höfuðáherslu á tré sem vaxa á Íslandi. Farið er yfir grunnatriði flokkunarfræði með tilliti til trjáa. Líkamsgerð og lífsstarfsemi skoðuð svo og útbreiðsla, þróunarlegur skyldleiki og nytsemi. Skógar, skógrækt, viðhald og hagnýting skóga og trjásjúkdómar eru meðal viðfangsefna. Nánari mörkun viðfangsefnis, s.s. hvaða trjátegundum eru gerð best skil, er ákveðin af viðkomandi skóla. Verklegar æfingar eru þáttur í náminu.
    LÍFF2EL05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - sögu grasafræði / skógfræði og tengslum við aðrar greinar
      - helstu hugtökum grasafræði / skógfræði
      - aðferðafræði grasafræði / skógfræði rannsókna
      - sérstöðu trjátegunda og skóga / skógræktar á Íslandi
      - sjálfbærri nýtingu á skógum
      - líffræðilegum fjölbreytileika
      - helstu rökum fyrir verndun íslenskra skóga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - lesa upplýsingar um ftré og skóg úr máli og myndum
      - beita hugtökum grasafræðinnar í rökrænu samhengi
      - fjalla um álitamál sem varða íslenska náttúru í víðum skilningi
      - greina trjátegundir út i í náttúrunni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - geta tekið ábyrga og rökstudda afstöðu til dægurmála tengda trjám og skógrækt á Íslandi
      - tengja undirstöðuþekkingu í grasafræði / skógfræði við daglegt líf og sjá notagildi hennar
      - fjalla um grasafræði / skógfræði á gagnrýninn hátt og velta fyrir sér ólíkum sjónarmiðum og lausnum
      - afla sér frekari upplýsinga og þekkingar á grasafræði- / skógfræðilegum viðfangsefnum
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.