Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1540574300.24

    Vistfræði
    LÍFF3VI05
    27
    líffræði
    vistfræðin
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn á að veita nemendum greinargóða yfirsýn yfir vistfræðina sem fræðigrein, aðferðafræði hennar og viðfangsefni. Lögð er áhersla á sérstöðu Íslands, helstu gerðir vistkerfa sem hér finnast í sjó jafnt sem á landi og vistfræðilegar rannsóknir hér á landi. Gert er ráð fyrir fjölbreyttri verkefnavinnu nemenda í áfanganum sem m.a. krefst vettvangsferða, heimsókna, upplýsingaöflunar og kynninga á verkefnum.
    Í áfanganum er fjallað um uppbyggingu, orkuflæði og efnahringrásir vistkerfa og teknar fyrir kenningar sem lúta að stöðugleika eða kviku jafnvægi vistkerfa. Fjallað er um líffræðilegan fjölbreytileika og breytingar á tegundasamsetningu líffélaga, bæði af náttúrulegum orsökum og af völdum manna.
    Stofnhugtakið er tekið fyrir og skoðaðar helstu mælingaaðferðir og rannsóknir á stofnum. Fjallað er um sjálfbæra nýtingu lífrænna auðlinda og helstu nytjastofna hér við land. Rætt er um aðlögun og hæfni lífvera og áhrif vistfræðilegra þátta á þróun þeirra og atferli.
    LÍFF2EL05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - sögu vistfræðinnar og tengslum við aðrar greinar
      - helstu hugtökum vistfræðinnar
      - aðferðafræði vistfræðirannsókna
      - uppbyggingu og mótun vistkerfa
      - sérstöðu Íslands
      - helstu hugtökum stofnvistfræði
      - sjálfbærri nýtingu lífrænna auðlinda
      - líffræðilegum fjölbreytileika
      - helstu rökum fyrir náttúruvernd
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - lesa vistfræðilegar upplýsingar úr máli og myndum
      - beita hugtökum vistfræðinnar í rökrænu samhengi
      - fjalla um álitamál sem varða íslenska náttúru í víðum skilningi
      - beita einföldum vistfræðilegum aðferðum í verklegum æfingum og vinna skýrslur úr þeim
      - þekkja einkenni og áhrifaþætti ólíkra vistkerfa
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - geta tekið ábyrga og rökstudda afstöðu til vistfræðilegra dægurmála
      - tengja undirstöðuþekkingu í vistfræði við daglegt líf og sjá notagildi hennar
      - fjalla um vistfræði á gagnrýninn hátt og velta fyrir sér ólíkum sjónarmiðum og lausnum
      - afla sér frekari upplýsinga og þekkingar á vistfræðilegum viðfangsefnum
      - taka ábyrgð á áhrifum eigin lífs á umhverfið m.t.t. vistfræði og sjálfbærrar nýtingar
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.