Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1542281232.85

    Næring íþróttafólks
    NÆRI2ÍÞ05
    10
    næringarfræði
    Íþróttanæringarfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Megin viðfangsefni áfangans er næring íþróttafólks og mikilvægi réttrar næringar, m.a. hvað á að borða og hvenær á að borða, til að ná hámarksárangri í sinni grein.
    Farið er yfir ráðleggingar Landlæknisembættis varðandi rétt mataræði. Fjallað um hver orkuþörf okkar er miðað við líkamsbyggingu og daglega hreyfingu. Farið nokkuð ítarlega í orkuefnin kolvetni, fitu og prótein, með þarfir íþróttafólks í huga. Skoðað er hlutverk og mikilvægi vítamína og steinefna í fæðunni og hversu mikilvægt er að vökvajafnvægi líkamans sé rétt.
    Fjallað verður um fæðubótarefni, hvaða næringarefni það eru sem verið er að sækjast eftir og hvenær er þörf á að borða fæðubótarefni eins og amínósýrur og kreatín. Einnig eru fæðubótarefni skoðuð með hliðsjón af ólöglegri lyfjanotkun.
    Farið er yfir hvað er átröskun og hvernig átraskanir koma fram í íþróttum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - hvað fellst í því að velja rétt mataræði með tilliti til næringarinnihalds
      - hver orkuþörf okkar er yfir daginn með hliðsjón af æfingaálagi og hvernig hægt er að mæta henni á sem bestan hátt
      - hvað er fæðubótarefni og hvenær er þörf á að neita fæðubótarefna
      - hvað er átröskun, hvernig átröskun kemur fram í heimi íþróttanna og hvað ber að varast
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - skoða og meta mataræði sitt þannig að hann geti gert jákvæðar úrbætur
      - skoða og meta næringarinnihald matvæla þannig að hann geti valið réttasta kostinn
      - skoða og meta matarframboð í hans nánasta umhverfi þannig að hann geti valið réttasta kostinn
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - velja rétt mataræði og stuðla þannig að betri heilsu og líðan, og að ná sem bestum árangri í sinni íþrótt
      - geta metið hvað er honum fyrir bestu í mataræði og valið sér fæðu með gagnrýnum huga
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.