Í áfanganum lærir nemandinn um innangerð húsa, svo sem afréttingu, lektun útveggja, plötuklæðningar, og uppsetningu innveggja. Nemandinn lærir glugga– og hurðasmíði ásamt frágangi við glugga– og hurðaop. Einnig lærir nemandinn um smíði innréttinga og innihurða, uppsetningu þeirra og frágang. Kennslan er að mestu verkleg þar sem nemendur smíða hluti eftir teikningum og/eða verklýsingum. Áfanginn er ætlaður bæði húsa– og húsgagnasmiðum.
TRÉS2NT04 og TRÉS2PH10
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
innri uppbyggingu húsa
frágangi klæðninga, innréttinga, gólfefna, glugga og hurða
innveggjasmíði
mismunandi gerðum glugga og hurða
ólíkum lausnum við smíði innréttinga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota og vinna með öryggisbúnað
velja verkfæri við hæfi og vinna með þau
rétta af útveggi undir klæðningar
smíða ólíkar gerðir innveggja
smíða glugga, hurðir og innréttingar
áætla efni til smíðavinnu
vinna eftir teikningum og verklýsingum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
smíða eftir teikningum og verklýsingum
leysa af hendi fjölbreytt verkefni á byggingavinnustað
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.