Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1542878396.25

    Útivist
    ÚTIV1ÚS02
    6
    Útivist
    Útivist í snjó
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum verður farið í eina vetrarferð með áherslu á skíðaiðkun. Áfanginn hefst á undirbúningi fyrir ferð af þessu tagi og farið yfir atriði sem snúa að því að vinna við krefjandi vetraraðstæður. Farið verður yfir búnað, nesti, öryggisatriði og líkamlegt ástand sem þarf til ferða að þessu tagi. Ferðin verður farin yfir helgi, gist er í skála á skíðasvæði.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • öryggisatriðum sem tengjast styttri og lengri vetrarferðum
    • hvaða búnað þarf í vetrarferðir t.d. fatnað, nesti og annan búnað.
    • mikilvægi góðrar líkamsgetu til þess að njóta útivistar.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meta veðurspá
    • nota snjalltækni til að kortleggja útivistina
    • nýta sér upplýsingar af kortum eða öðrum miðlum.
    • vera með réttan búnað með sér.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu
    • til að undirbúa sig fyrri mismunandi aðstæður við útivist
    • meta eigin líkamlegu færni til að takast á við mismundi aðstæður
    Þátttaka í undirbúningi og ferð.