Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1543313446.36

    Undirbúningsáfangi á framhaldsskólabraut
    STÆR1FO04
    107
    stærðfræði
    fornámsáfangi
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    FO
    Í áfanganum er lagður grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði og byggt er ofan á grunn sem nemendur hafa lært í grunnskóla. Efni áfangans er talnareikningur, algebra og jöfnur.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • uppsetningu og lausn á jöfnum og formúlum
    • ýmsum reglum og beitingu þeirra t.d. Pýþagorasreglan
    • talnahlutföllum, prósentum og vöxtum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja upp og leysa jöfnur og formúlur
    • nota mismunandi reglur stærðfræðinnar þegar við á
    • vinna með hlutföll, prósentur og vexti
    • vinna með tugveldisrithátt og mælinákvæmni til að bera saman tölur
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita jöfnum og formúlum á réttan hátt við lausn ýmissa verkefna
    • beita hlutfallareikningi við lausn raunverulegra verkefna
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.