Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1543317643.77

    Áætlanir og gæðastjórnun
    ÁÆST3SA05
    6
    Áætlanir og gæðastjórnun
    Áætlanir og gæðastjórnun
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum læra nemendur að nýta sér tölvur við útreikninga og verkáætlanir. Kennd eru grunnatriði töflureiknis og verkáætlanaforrits. Farið í stjórnunar‐ og verkferla og gæðatryggingar við verklegar framkvæmdir Fjallað er um áætlanagerð eins og sundurliðun verkefna. Áfanginn er sniðinn að þörfum bygginga‐ og mannvirkjagreina og fer kennslan að mestu fram með raunhæfum verkefnum.
    10 einingar á 2 þrepi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • verkefnastýringu/gæðastjórnun byggingaferla
    • gerð kostnaðaráætlana
    • uppbyggingu töflureikna og hagnýtingu þeirra
    • áætlanagerð og verkáætlanaforritum
    • tölvuforritum sem notuð eru til að gera verkáætlanir og hagnýtingu þeirra
    • helstu stjórnunar‐ og verkferlum
    • gæðatryggingar við verklegar framkvæmdir skipuritum og starfslýsingum
    • innra eftirliti með einstökum verkþáttum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • magntaka og kostnaðarreikna einfalda þætti verklegra framkvæmda
    • gera verk og tímaáætlanir
    • fylgja eftir gæðastjórnun á verkferlum
    • nota verkáætlanaforrit við gerð tímaáætlana
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • magntaka og kostnaðarreikna einfalda verkþætti á sjálfstæðan hátt
    • beita tíma‐ og hráefnisskráningu
    • vinna með tölvuforrit sem notuð eru til að gera verkáætlanir
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá