Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1547808428.54

    Rafmagnsfræði 5 fyrir vélstjóra
    RAMV3RS05(AV)
    14
    Rafmagnsfræði
    rafkerfi, rafteikningar, staðlar og reglugerðir
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    AV
    Nemandinn öðlast þekkingu og færni í að nota staðal fyrir rafteikningagerð. Hann kynnist upbyggingu og gerð rafteikninga, fær þjálfun í lestri rafteikninga og gerir sér grein fyrir uppbyggingu rafkerfa. Nemandinn kynnist ýmsum gerðum teikninga, t.d. kassateikningum (flæðirit), einlínuteikningum og straumrásarteikningum. Nemandanum er kennt að nota teiknistaðal og alþjóðastaðallinn (IEC) kynntur. Lögð er áhersla á lestur rafteikninga og þá helst af rafkerfum skipa. Nemandinn öðlast yfirsýn yfir uppbyggingu rafkerfa og kynnist ýmsum reglugerðarákvæðum í sambandi við rafkerfi skipa. Nemandinn kynnist vinnumáta og notkun algengustu fjarskipta- og siglingatækja.
    RAMV3RF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • gerð og uppbyggingu rafteikninga
    • helstu teiknistöðlum við rafteikningagerð og notkun teikniforrota
    • hönnun rafliðastýringa og notkun iðntölva í stað segulliða í stýrirásum
    • ýmsum gerðum rafmagnsteikninga samkvæmt alþjóðastaðli (IEC)
    • reglugerð um raforku og raflagnir í íslenskum skipum
    • reglugerðum um fjarskipti og fjarskiptabúnað skipa, s.s. IMO, GMDSS-SOLAS alþjóðasamþykktinni, STCW-alþjóðasamþykktinni, SAR-
    • alþjóðasamþykktinni og fjarskiptareglum ITU
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • teikna, hanna og annast tengingar á segulliðarásum eftir lýsingu
    • nota iðntölvur til stýringa
    • lesa rafmagnsteikningar, svo sem af rafkerfum skipa
    • vinna kerfisbundið að því að finna bilun í rafkerfum skipa með aðstoð teikninga
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • útskýra uppbyggingu rafkerfa skipa með aðstoð teikninga
    • sjá um og reka raforkukerfi í skipum
    • nýta fjarskipti og fjarskiptabúnað í skipum samkvæmt íslenskum reglugerðum og alþjóða samþykktum
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.