Í áfanganum fær nemandinn þjálfun í að tengja transistora, mæla vinnuspennur þeirra við eðlilegar aðstæður og öðlast skilning á því hvernig hægt er að láta straumgrannar IC-rásir stýra aflfrekum tækjum með transistorum. Nemandinn kynnist möguleikum ljóstengja, bæði með transistor og tríakk, og fær þjálfun í að tengja og mæla. Hann öðlast þjálfun í að tengja og mæla vélgæslukerfi, sem er byggt upp með IC-rásum og transistorum og kynnist mismunandi búnaði til að þreifa eftir ástandi á mælistöðum kerfisins. Nemandinn öðlast sérþekkingu og skilning á þeim þáttum rafmagnsfræðinnar sem lúta að stjórnbúnaði véla og tækja og bilanaleit, einnig vinnu með örgjörva og forritun þeirra. Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandinn fái þjálfun í uppbyggingu rafeindatækja, í lóðningu íhluta á prentplötu og að ganga frá tækjum á löglegan hátt.
REIT2AR05, RAMV3RF05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
notkun straumgrannra IC-rása við stýringar á aflfrekum tækjum með transistorum
IC-rásum (MOS-fjölskyldunni)
uppbyggingu og virkni riðstraumsmagnara
uppbyggingu og virkni brunavarnakerfa og skynjurum sem tengjast þeim
forritun fyrir ferjald með örgjörva
uppbyggingu og virkni hitanema og aðferðum við tengingu þeirra
notkun ljóstengja við stýringar á búnaði
ljóstengjum, bæði með transistor og tríakk
notkun og tengingu transistora
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
velja viðeigandi nema á grundvelli notkunar og mælisviðs
tengja og mæla stafrænar rásir og hliðrænar rásir
lóða íhluti á prentplötu
kanna ástand framangreindra íhluta og leggja mat á hvort þeir eru í lagi eða ekki
tengja ferjald við iðntölvur
vinna við rásir með aðgerðamögnurum
vinna að bilanaleit og úrbótum í stjórnbúnaði véla og tækja
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera bilanagreiningu á flóknum rafbúnaði og stjórnbúnaði
framkvæma viðgerðir á rafeindarásum og ganga frá þeim á löglegan hátt
meta ástand rafeindatækja
tengja og mæla afriðilsrásir og stýrirásir með týristorum
gera einfaldar bilanagreiningar í rafeindarásum
vinna með örgjörva og forritun þeirra
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.