Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1548672621.84

    Teikning
    MYNL2TK05
    17
    myndlist
    fjarvídd, form, hlutföll, lína, teikning: blýantur
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum læra nemendur og æfa grunnatriði teikningar. Fjallað er um mikilvægi línu í allri teikningu, skyggingar æfðar lögð áhersla á að þjálfa formskilning með greiningu grunnformanna bæði þau tvívíðu og þrívíðu. Unnið er með myndbyggingu út frá formum, raunsætt og abstrakt. Eins- og tveggjapunkta fjarvídd skoðuð og æfð.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - möguleikum blýantsins
      - mikilvægi línu
      - áhrifum skugga og ljóss
      - tvívíðum og þríviðum formum
      - eins- og tveggjapunkta fjarvídd
      - myndbyggingu, bæði abstrakt og raunsætt
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - sýna trúverðuga skyggingu með blýanti með mikilli dýpt þar sem öllum tónum grátónaskalans er beitt sem og sýnt fram á miklvægi á beytingu línu
      - teikna þrívíðu grunnformi með og án skyggingar
      - teikna fjarvíddarmyndir innan húss og utan með hjálp eins- og tveggjapunkta fjarvíddartækni og skyggt með blýanti
      - að mæla út hlutföll og nýta í sinni teikningu
      - að teikna flóknari hluti með grunnformin í huga
      - setja saman myndbyggingu út frá bæði abstrakt og raunsæi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - skynja og sjá að allt er samsett úr grunnformum sem línur mynda
      - teikna og skyggja mynd af fyrirbærum í umhverfinu, bæði raunsætt og abstrakt
      - teikna út frá eigin hugmyndum sem og fyrirmyndum
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámsskrá.