Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1548690956.3

    Myndlist
    MYNL3ML05
    13
    myndlist
    litablöndun og teikning mannslíkamans, myndbygging
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum vinna nemendur með ýmis konar myndefni og færa það upp í mismunandi stílbrigði.
    Myndflöturinn er vettvangurinn og hann sýnir hvernig hin ýmsu mótíf taka breytingum eftir stíl. Unnið er með myndefni eins og t.d. uppstillingar, landslag, fólk og fantasíur. Þetta er fært í mismunandi stíla eins og t.d. raunsæi, kúbisma, impressionisma og súrrealisma með hjálp listasögunnar og notaðar margvíslegar aðferðir eins og blýantur, vatnslitir, þurrpastellitir, þekjulitir, blek, krít, kol o.fl.
    MYNL1LM05 og MYNL2TK05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - hvernig myndefni taka breytingum eftir stílbrigðum
      - nokkrum mismunandi stílum
      - þeim möguleikum sem mismunandi aðferðir bjóða upp á
      - nokkrum listastefnum frá 1870 og í kringum 1900
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - tileinka sér og vinna með sama myndefni út frá ákveðnum stílbrigðum
      - greina og vinna með ólíka stíla
      - nýta sér nokkrar ólíkar aðferðir og efni til myndsköpunar
      - nota ólík efni við myndsköpun
      - greina og vinna með mismunandi myndbyggingu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - gera sína eigin mynd út frá stílum og myndefni
      - ná fram mismunandi áhrifum í verki sínu með ýmis konar myndbyggingu og litum
      - færa í orð og nota haldbær rök þegar myndlist er rædd
      - að færa rök fyrir myndverki sínu og lýsa með orðum þeim áhrifum sem þar má finna
      - greina mismunandi myndbyggingu og meta hver áhrif hún hefur
      - nýta sér ólík efni og aðferðir við myndsköpun
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og er í samræmi við skólanámskrá.