Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1548771879.06

    Dungeons & Dragons hlutverkaspil
    HLUT1DD03
    1
    Hlutverkaspil
    Dungeons & Dragons
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Í þessum grunnáfanga í Dungeons & Dragons er farið í alla helstu grunnþætti spilsins. Nemendur byrja á því að læra einfaldaða útgáfu sem leggur áherslu á skapandi spilun, persónusköpun og helstu leikreglur. Í framhaldi af því er farið að spila hefbundnari útgáfu leiksins með notkun 5 útgáfu leiksins og læra nemendur að búa til eigin persónur og aðferðir við að skapa persónur og heim í samvinnu við aðra. Í kennslustundum er blandað saman æfingum og spilamennsku, auk almennrar fræðslu um sögu spilsins og áhrif þess á menninguna. Í áfanganum verður nemendum einnig gefinn kostur á að semja sína eigin útgáfu af leik og stýra öðrum sem dýflissustjóri í D&D.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Sögu D&D.
    • Grunnreglum í D&D.
    • Mismunandi stigakerfum.
    • Mismunandi spilunaraðferðum.
    • Notkun leikreglna og hlutverkaspilun við spilaborðið.
    • Sköpun persóna og söguþráðar.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Meta styrk persóna og leikkerfa og tjá þann styrk innan reglna leiksins.
    • Vinna með spilafélögum til að ná settum markmiðum.
    • Gera áætlun sem spilari og sem dýflissustjóri.
    • Reikna út stig á mismunandi formi.
    • Bregðast við leikspuna og óvæntum uppákomum innan hlutverkaleikja.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Sýna samvinnu og umburðarlyndi með spilafélögum.
    Leiðsagnarnám. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.