Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1548798645.98

    Teikningar og verklýsingar í húsasmíði
    TEIK2HH05(FB)
    14
    teikning
    Teikningar og verklýsingar í húsasmíði IV
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    FB
    Nemendur fá áframhaldandi þjálfun í lestri og gerð byggingateikninga en nú með áherslu á timburhús og þakvirki. Haldið er áfram umfjöllun um almenna byggingauppdrætti en samhliða koma einnig burðarvirkisuppdrættir þar sem m.a. er komið inn á ýmiss konar álag á byggingar og brunahönnun. Fjallað er um algengustu útfærslur burðarvirkja úr tré, byggingatæknilegar lausnir, hönnunarforsendur, verklýsingar með tilliti til m.a. efniskrafna og einangrunar. Nemendur kynnast mátkerfi fyrir byggingariðnaðinn og fá þjálfun í gerð efnislista og kostnaðarútreikninga á grundvelli hönnunargagna. Áfanginn er ætlaður húsasmiðum og byggist á verkefnavinnu með leiðsögn kennara
    GRTE1FF05 ‐ GRTE2FÚ05 Grunnteikning, TEIK2HS05 Teikningar og verlýsing í húsasmíði
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • trévirki timburhúsa og útfærslu einstakra byggingarhluta
    • ákvæðum reglugerðar um byggingarefni húsa með áherslu á timbur
    • íslenskum stöðlum um timbur og festingar í burðarvirki húsa
    • helstu fagheitum á byggingar- og burðarvirkisuppdráttum
    • mátkerfi fyrir byggingariðnaðinn og hagnýtingu þess
    • teikningalestri og vinnu með teikningar timburhúsa og trévirkja
    • helstu tegundum uppdrátta og teikninga og öll almennum teiknitáknum
    • merkingum og verklýsingum á teikningum
    • teikniaðferðum og teiknireglum fyrir trévirki og timburhús
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gera efnislista og einfalda kostnaðarútreikninga á grundvelli teikninga
    • teikna algengustu deililausnir trévirkja og lítið timburhús
    • gera rissmyndir af deililausnum einstakra byggingarhluta úr tré
    • gera uppdrætti af litlu timburhúsi og deiliteikningum trévirkja
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • styðjast við Rb-blöð í upplýsingaleit og við gerð teikninga
    • hafa innsýn í tæknilegar útfærslur vegna álags og einangrunar
    Mælt er með því að námsmat byggi á verkefnavinnu, skyndiprófum og lokaprófi.