Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1548799844.29

    Teikningar og verklýsingar í húsasmíði
    TEIK3HU05(FB)
    9
    teikning
    teikningalestur og teikningar bygginga og mannvirkja
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    FB
    Í áfanganum er lögð áhersla á teikningalestur og teikningar bygginga og mannvirkja úr steini og gleri. Farið er yfir grundun og undirstöður steinhúsa, steinsteypu-, málmog glervirki með áherslu á útveggi, klæðningar þeirra og einangrun. Auk umfjöllunar um byggingar er einnig komið inn á önnur mannvirki eins og brýr, hafnir, virkjanir og jarðgöng og útfærslur þeirra. Nemendur kynnast grunnatriðum tölvuteikninga og notkun tölvutækni við miðlun uppdrátta og annarra hönnunargagna. Áfanginn er eingöngu ætlaður húsasmiðum og byggist kennslan aðallega á verkefnavinnu auk þess sem nemendur læra um viðmót og uppbyggingu algengustu teikniforrita.
    GRTE1FF05 ‐ GRTE2FÚ05 Grunnteikning, TEIK2HS05‐ TEIKHH05 Teikningar og verlýsing í húsasmíði
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • teikniaðferðum og teiknireglum fyrir steypuvirki og klæðningar
    • stöðluðum málum á steinveggjum, klæðningagrindum og einangrun
    • ýmsum gerðum uppdrátta og teikninga og öll almennum teiknitáknum
    • ákvæðum reglugerða um undirstöður bygginga og mannvirkja
    • ákvæðum reglugerðar um útveggi, klæðningar þeirra og einangrun
    • grunnatriðum járnbendingar á steinsteypu og steinsteyptum stigum
    • fagheitum í aðaluppdráttum, lóða- og burðarvirkisuppdráttum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gera kostnaðarútreikninga og verklýsingar
    • vinna eftir reglugerðum
    • magntaka/vinna eftir teikningum og verklýsingum
    • teikna vinnuteikningar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lesa og skilja merkingar og verklýsingar á teikningum
    • gera efnislista og kostnaðarútreikninga á grundvelli uppdrátta
    • gera vinnu- og deiliteikningar af steinsteypuvirkjum s.s. stigum
    • gera rissmyndir og eftir atvikum notað fjarvídd til að sýna rýmisútfærslur
    • kunna skil á steinsteypuvirkjum og klæðningu steinsteyptra útveggja
    Mælt er með því að námsmat byggi á verkefnavinnu, skyndiprófum og lokaprófi.