Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1549363126.33

    Stærðfræði 2 - Algebra og margliður.
    STÆR2BB05
    100
    stærðfræði
    Fornám 2
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Þáttun, annars stigs jöfnur, rótarjöfnur, algildisjöfnur, fleygbogar og föll
    Nemandi skal hafa staðist áfangann STÆR2AA05 eða samsvarandi hraðferð eða hægferð
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Frumþáttun.
    • Þáttun og liðun algebrustæða .
    • Reikningi með algebrubrot.
    • Veldareglum og sambandi milli velda og róta
    • Annars stigs og hærra stigs jöfnum
    • Algildisjöfnum, rótarjöfnum og ójöfnum
    • Margliðum og margliðudeilingu.
    • Fallhugtakinu, skilgreiningarmengi og myndmengi.
    • Margliðuföllum og ræðum föllum.
    • Grafi annars stigs margliðu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Beita táknmáli s.s: Reglum um stærðfræðilega framsetningu viðkomandi námsefnis og geti túlkað það sem felst í táknmáli á mæltu máli.
    • Frumþátta
    • Vinna með algebrubrot.
    • Nota veldareglur
    • Leysa margliðujöfnur og ójöfnur, algildisjöfnur og rótarjöfnur.
    • Kanna fleygboga
    • Túlka myndrænt jöfnur og ójöfnur
    • Nýta grafískan vasareikni til lausnar verkefna
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Skrá lausnir sínar skipulega og útskýra hugmyndir sínar og verk í mæltu og máli.
    • Greina og hagnýta upplýsingar á sviði stærðfræði á þrepinu
    • Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau.
    • Skilja hverskonar spurningar leiða til stærðfræðilegra viðfangsefna, spyrja slíkra spurninga og gera sér grein fyrir hver hugsanleg niðurstaða geti orðið.
    • Átta sig á og gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna.
    • Beita gagnrýnni og skapandi hugsum og innsæi við lausn verkefna og þrauta.
    • Klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa þau og túlka lausnina.
    • Skilja röksemdir, þar með taldar sannanir í námsefni og beita einföldum röksemdafærslum.
    • Leysa verkefni í öðrum námsgreinum : s.s eðlisfræði og hagfræði.
    • Átta sig á kröfum um stærðfræðiþekkingu á ólíkum námsleiðum og fræðigreinum.
    Námsmat byggir á frammistöðu á lokaprófi og vinnu yfir önnina. Vinna yfir önnina samanstendur af verkefnavinnu, tímaæfingum og heimaverkefnum.