Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1549878330.04

    Fóðrun og heilsa III
    FÓHE2FU05
    3
    Fóðrun og heilsa
    Fóðrun og umsjón hesta
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Meginviðfangsefni áfangans er fóðrun, fóðurgæði og umhirða hesta. Nemendum er kennt að meta fóðurástand hesta sinna, gæði fóðurs og hvert sé nauðsynlegt magn næringarefna í innihaldi hestafóðurs. Farið verður yfir helstu grunnþætti almennra fóðurfræða og hvernig fóðra skal hesta miðað við mismunandi aðstæður og fóðurkröfur t.d. hest á viðhaldsfóðri, hest í vexti eða mikið brúkaðan reiðhest.
    Farið verður yfir helstu þætti er snúa að dýravelferðarmálum og hvernig hægt er að haga umhirðu hests með vellíðan hans í huga og í því sambandi farið yfir helstu þætti hirðingar s.s. rakstur, kembingu, hófhirðu, val á undirburði í stíum o.fl.
    Í áfanganum verður einnig farið yfir helstu atriði er varða járningar á keppnis- og kynbótahrossum, hvað er æskilegt og hvað ber að varast og hvað reglur gilda um þær járningar.
    Æskilegt er að kennsla fari að nokkru leiti fram í hesthúsum þar sem nemendur þurfa að meta holdafar hrossa sinna, setja upp fóðuráætlun í samræmi við fóðurgæði, holdafar og brúkun, auk þess að halda fóðurdagbók.
    FÓHE2HU03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunn atriði í fóðurfræði
    • mati á fóðri
    • fóðurþörf og fóðurástandi hrossa
    • dýravelferðarmálum
    • aðbúnaði hrossa í hesthúsi, þrif á hrossum og hreinlæti í húsum
    • grunnstöðu hófs og hvernig hún er metin
    • hvernig almenn þekking á líkamsbyggingu hestsins nýtist við járningar og hófhirðu
    • hvernig ganga skuli um búnað og verkfæri s.s. járningaverkfæri, kamba, klippur, ofl.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • hugsa rétt um hesta, fóðra þá og meta líkamlegt ástand, s.s. holdastig og almennt heilbrigði
    • fóðrað hross miðað við mismunandi skilyrði
    • meta gæði fóðurs
    • setja upp fóðuráætlanir með tillit til holdafars hesta, notkunar og gæði fóðurs
    • umgangast og hirða hesta á öruggan og ábyrgðarfullan hátt
    • meðhöndla járningaverkfæri
    • klippa hófa miðað við grunnstöðu hófs
    • járna einfaldar járningar
    • raka undan faxi og kvið hrossa
    • halda hrossum hreinum á húsi og í almennri sæld
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hugsa rétt um hesta, fóðra þá og meta líkamlegt ástand, s.s. holdastig og almennt heilbrigði.
    • skrásetja atriði er lúta að umhirðu hrossa
    • meta fóðurþörf við mismunandi aðstæður og setja upp fóðuráætlanir
    • meta rétta fótstöðu hrossa
    • meta ástand járninga
    • halda hestum á húsi hreinum og í sæld
    Námsmat er fjölbreytt og felst meðal annars í ýmsum verkefnum, prófum, jafningjamati og sjálfsmati.