Meginviðfangsefni áfangans er almenna umhirðu hesta, heilbrigði þeirra og velferð. Farið er yfir líkamsbyggingu hestsins, stoðkerfi, bein, vöðva og meltingarfæri. Nemendur kynnast skala holdastigunnar og læra að meta holdastig og fóðrunarástand hrossa. Farið er yfir grundavallaratriði er tengjast heilsu hrossa og helstu sjúkdóma. Fjallað er ítarlega um hófa og fætur hrossa og sú þekking tengd praktískum þáttum varðandi járningu og hófhirðu. Nemendur fá kennslu í meðhöndlun járningaverkfæra og læra að klippa til hófa, móta til skeifur á einfaldan hátt og negla skeifur á dauðar fætur. Nemendur læra einnig að meta ástand járninga og fótstöðu, öðlast meiri færni í meðhöndlun járningaverkfæra, læra að klippa til hófa, móta til skeifur og framkvæma einfalda járningu.
FÓHE1GR03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirstöðuatriðum er varðar almenna umhirðu hesta er stuðla að heilbrigði og velferð þeirra.
líkamsbyggingu hestsins, stoðkerfi, beinum og vöðvum
meltingarfærum hrossa
uppbyggingu hófa og fóta
holdafari hesta, holdastigunnarkvarða
helstu staðreyndir er lúta að heilbrigði og heilsufari hesta
algengustu hrossa-sjúkdómum
helstu staðreyndum er lúta að umhirðu fóta og hófa
sögu og þróun járninga
mismunandi vinnuaðferðum við járningar
helstu járningarverkfærum og hvernig þau eru notuð
hvaða þættir hafa áhrif á hófvöxt.
helstu atriði er varða skeifur, hóffjaðrir og annað efni sem notað er við járningar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leggja mat á andlegt og líkamlegt ástand hesta
leggja mat á heilbrigði hrossa
nefna helstu sérkenni á líkamsbyggingu hrossa
geta nefnt helstu heiti á líkama hestsins
lyft upp öllum fótum hestsins þvingunarlaust
meta holdafar
geta lagt mat á ástand járninga
meðhöndla járningaverkfæri
móta til skeifur
• framkvæma einfalda járningu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
aðstoða við almenna hirðingu á hrossum
þekkja útlit heilbrigðs hests
geta greint ef hestur er ekki í eðlilegu ásigkomulagi
meta holdafar hrossa
meta ástand járninga
festa skeifu sem hestur hefur misst undan
Námsmat er fjölbreytt og felst meðal annars í ýmsum verkefnum, prófum, jafningjamati og sjálfsmati.