Meginviðfangsefni áfangans er helstu undirstöðuatriði varðandi fóðrun og umhirðu hesta. Farið verður yfir helstu grunnþætti í atferli hesta, hvaða öryggisatriði þarf að hafa í huga við almennt hestahald og hvaða reglur gilda þar að lútandi. Farið er yfir grunnatriði í almennri umhirðu hrossa s.s. fóðrun, hófhirðu og heilbrigði.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnþáttum í atferli, eðli og hegðun, skapi, skynjun og skynfærum hesta.
reglur varðandi hestahald og helstu öryggisatriðum er lúta að hestahaldi.
aðbúnaði hrossa í hesthúsi og í haga.
grunnatriðum varðandi fóðrun hrossa.
helstu þætti varðandi mismunandi fóðurþarfar hrossa.
mismun gróffóðurs og kjarnfóðurs.
grunnatriðum lútandi vítamín og steinefnaþarfir hrossa.
helstu atriðum er varða hófhirðu hrossa.
helstu atriði er varða almennt heilbrigði hrossa.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
umgangast hesta og annast þá á hestvænum og öruggum forsendum.
nálgast, teyma, binda og meðhöndla hesta á réttan hátt.
nota helsta búnað og aðstöðu sem fylgir greininni.
aðstoða við fóðrun og hirðingu.
hreinsa úr hófum fyrir og eftir útreiðar.
aðstoða við járningar og hófhirðu útigangshrossa.
meta almennt heilbrigði hrossa.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
umgangast hesta og annast þá á hestvænum og öruggum forsendum.
tekið við upplýsingum frá yfirmanni og aðstoðað við fóðrun og gegningar.
hreinsað úr hófum.
Námsmat er fjölbreytt og felst meðal annars í ýmsum verkefnum, prófum, jafningjamati og sjálfsmati.