Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1549879965.27

    Fóðrun og heilsa IV
    FÓHE3AU03
    1
    Fóðrun og heilsa
    aðbúnaður hesta og umhverfi
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Meginviðfangsefni áfangans er að kenna helstu atriði sem hafa ber í huga við almennt hestahald. Hluti námskeiðsins fer fram í hesthúsum nemenda þar sem nemendur eru látnir bera ábyrgð á fóðrun og umhirðu hesta sinna. Úttekt fer fram í byrjun og lok námskeiðs en nemandi heldur skráningu á þjálfun og umhirðu hesta sinna og skilar skýrslu í námskeiðslok.
    Í áfanganum er farið yfir helstu reglugerðir um hestahald og aðbúnað hesta. Farið er í skipulag í hesthúsi, s.s. stíustærð, vinnuplássi, viðrunargerði, kaffistofu, fóður- og hnakkageymslu og helstu grunnatriði varðandi loftræstingu og lýsingu. Jafnframt er farið yfir helstu atriði er lúta að hestum í haga, mat á landi, skiptingu stóðs, girðingar, fóðrun og skjól og einnig helstu þætti er varða hrossarækt, uppeldi unghrossa og stóðhestahald. Nemendum eru kynnt öryggisatriði og helstu reglur varðandi hestakerrur og flutning á hrossum.
    FÓHE2FU05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • reglum varðandi hestahald
    • aðbúnaði hrossa í hesthúsi og í haga
    • mikilvægi beitarstjórnar og mati á beitarálagi
    • fóðrun hrossa á húsi og á útigangi
    • mismunandi gerðum girðinga
    • reglum varðandi girðingar á hrossahólfum
    • reglum varðandi hesthús og umgjörð hesthúss
    • helstu atriði er hafa ber í huga við skipulag á hesthúsi
    • hvernig haga skuli geymslu á fóðri
    • helstu atriði er varða loftskipti í hesthúsi
    • helstu atriði er varða lýsingu í hesthúsi
    • umhverfi hesthúss og gerði
    • helstu atriði er varða hrossarækt, uppeldi unghrossa og stóðhestahald.
    • helstur reglum og öryggisatriðum hvað varðar hestakerrur og flutning á hrossum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • hugsa rétt um hesta, fóðra þá og meta líkamlegt ástand, s.s. holdastig og almennt heilbrigði
    • gera umhverfi hestsins hestvænt
    • meta gæði hesthúss
    • halda hesthúsi með jöfnu hitastigi, hreinu og vel loftræstu
    • setja upp aðstöðu í hesthúsi þannig að vel fari um menn og hross
    • útiloka allar hættur eða slysagildrur sem kunna að skapast í illa hönnuðum hesthúsum
    • halda gerði og ytra umhverfi hesthús í sómasamlegu ásigkomulagi
    • setja upp algengustu gerðir af girðingum og viðhalda þeim
    • meta ástand beitarhólfa
    • skipt upp stóði eftir fóðurþörf hrossa og virðingastigi
    • flutt hross milli staða á öruggan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta borið ábyrgð á umhirðu hrossa í hans umsjá.
    • geta haldið hesta og fóðrað þá við mismunandi skilyrði í samræmi við gildandi reglugerðir og lög hverju sinni
    • meta beit og beitarálag
    • fóðra hross eftir fóðuráætlun
    • gera umhverfi hestsins hestvænt
    • ala upp ung hross
    • hafa umsjón með stóðhesti
    • flytja hross á milli staða á öruggan hátt
    Námsmat er fjölbreytt og felst meðal annars í ýmsum verkefnum, prófum, jafningjamati og sjálfsmati.