Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1549883541.71

    Leiðbeinandi í hestamennsku
    LEIH2HE04
    2
    Leiðbeinandi í hestamennsku
    Hestamennska
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    Í áfanganum er farið í helstu þætti hestatengdar ferðaþjónustu. Nemandinn fær kennslu og æfingu í störfum greinarinnar og lærir að aðstoða fagfólk við að skipuleggja og undirbúa hestaferð. Einnig að leiðbeina byrjendum (börnum og fullorðnum) í hestamennsku. Farið er í öryggismál, samskipti við viðskiptavini og almennar vinnureglur á hestaleigum og reiðskólum. Kennd er skyndihjálp í hestamennsku.
    Nemendur þurfa að taka, eða hafa tekið, almennan áfanga í skyndihjálp til að ljúka þessum áfanga.
    Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur.
    REIM3ÞG05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvaða atriði þarf að hafa í huga við undirbúning og framkvæmd á hestaferð
    • hvernig aðstoða á fagfólk við reiðkennslu og stjórna byrjendahópum á hestaleigum
    • almennum öryggismálum á hestaleigum og reiðskólum
    • skyndihjálp í hestamennsku og kunna fyrstu hjálp
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • hafa öðlast leikni í að undirbúa hestaferð gesta á hestaleigu
    • aðstoða fagfólk við reiðkennslu og stjórna byrjendahópum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta aðstoðað við undirbúining og útfærslu ferða í hestatengdu ferðaþjónustu fyrirtæki
    • getað aðstoðað reiðkennara við kennslu byrjenda í hestamennsku
    • getað notað skyndihjálp og tryggt öryggi gesta ferðaþjónustunnar
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og er í samræmi við skólanámskrá