Í áfanganum fer fram kynning og verkleg þjálfun á ýmsum störfum í hestamennsku. Meginviðfangsefni áfangans er að nemandinn fái að aðstoða við og framkvæma helstu verk sem unnin eru varðandi hrossahald starfsnámsstaðarins og auki þar með þekkingu sína, verkfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum. Fái innsýn í stjórn og rekstur tamningastöðvar/hrossabús/hestatengds ferðaþjónustufyrirtækis svo og þjálfun í mannlegum samskiptum. Nemandinn á að fylgjast með andlegu og líkamlegu heilbrigði hesta s.s. ástandi járninga, heilbrigði fóta ásamt fóðurástandi og almennu heilbrigði. Nemandinn heldur dagbók yfir allt tímabilið þar sem koma fram lýsingar á daglegri vinnu auk lista yfir unnar klukkustundir og skrifar verklýsingar á verkþáttum starfsnámsins. Lögð er áhersla á að starfsneminn fái að aðstoða við umsjón og hirðingu hesta á starfsnámsstaðnum og fái tækifæri til að aðstoða við grunnþjálfun á a.m.k. 3 hestum. Starfsþjálfunin fer fram að sumri. Það þarf að skila minnst 240 klukkustundum á ekki skemmri tíma en 6 vikum til að uppfylla skilyrði áfangans. Vinnutíminn skal falla að því starfi sem fram fer á starfsnámsstaðnum. Nemandi finnur sér sjálfur starfsnámsstað og umsjónarmann, sem verkefnisstjóri skólans þarf að samþykkja áður en starfsnám hefst. Hlutverk umsjónarmanns er að stjórna starfsnáminu á staðnum, kenna nemandanum og meta framvindu námsins.
VINU2FH02
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Viðteknum starfsaðferðum og vinnulagi sem nýst getur í hestamennsku
Starfs- og ábyrgðarsviði starfsnema á starfsnámsstað
Hirðingu og fóðrun hrossa
Mismunandi vinnuaðferðum, nálgun við þjálfun hesta
Mati á andlegu og líkamlegu heilbrigði hrossa
Grunnþjálfun hesta
Hringteymingum og vinnu við hönd
Markvissum vinnubrögðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Tileinka sér viðeigandi vinnubrögð á starfsnámsstað
Leggja rétt mat á einfaldar aðstæður og taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi verklag.
Umgangast hesta og annast þá á réttum og öruggum forsendum
Leggja mat á andlegt og líkamlegt heilbrigði hesta.
Nota helsta búnað og aðstöðu sem fylgir greininni.
Hugsa rétt um hesta, fóðra þá og annast þá með tilliti til andlegs og líkamlegs heilbrigðis þeirra.
Nýta sér fjölbreyttan búnað og aðstöðu í greininni.
Nýta sér markviss og fjölbreytt vinnubrögð við grunnþjálfun hrossa
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Sinna grunnþáttum er lúta hirðingu, fóðrun og aðbúnaði hesta
Umgangast hesta og annast þá á réttum forsendum
Leggja rétt mat á einfaldar aðstæður og taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi verklag.
Grunnþjálfa hesta með mismunandi þjálfunaraðferðum.