Nemendur kynnast störfum í matreiðslu og framreiðslu á vinnustöðum og í atvinnulífi, í hverju störfin eru fólgin og við hvaða aðstæður þau fara fram. Kynnt er fyrir nemendum mikilvægi samskipta við samstarfsfólk og viðskiptavini. Nemendur fá verklega þjálfun í helstu grunnþáttum starfa í matvæla- og ferðagreinum.
VÞVM1VA01
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi störfum í ferða- og matvælagreinum, í hverju þau eru fólgin og hvar þau fara fram
fjölbreytni starfa í ferða- og matvælagreinum
hvernig návígi við viðskiptavini er háttað í störfum í ferða- og matvælagreinum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna við mismunandi störf í ferða- og matvælagreinum
bregðast við þeim kröfum sem gerðar eru til starfa í ferða- og matvælagreinum
umgangast viðskiptavini á faglegan og viðurkenndan hátt
annast helstu grunnstörf í ferða- og matvælagreinum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
takast á við margbreytileg störf í ferða- og matvælagreinum
umgangast viðskiptavini á viðurkenndan hátt
vinna við öll grunnstörf er tengjast ferða- og matvælagreinum og gera sér grein fyrir þeim kröfum sem gerðar eru til starfsmanna