Í áfanganum er fjallað um evklíðska rúmfræði (grunnhugtök og reglur í rúmfræðinni), Pýþagóras, hliðrun á hniti, hringi, þríhyrninga og önnur form og einslögun.
STÆR2MÁ05 (A)
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grundvallarhugtökum og reglum tengdum evklískri rúmfræði
Pýþagórasarreglunni.
færslu forma á hniti.
einslögum forma.
einkennum mismunandi grunnforma ásamt jöfnum formanna.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita stærðfræðiformúlum í rúmfræði.
nota sannanir og reglur til að leysa krefjandi viðfangsefni.
vinna með einslögun forma og hvernig ber að nota hnit til að breyta en halda lögun.
beita rökfræði við skilgreiningu verkefna.
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega með nútíma tækni, ræða þær við aðra og útskýra hugmyndir sínar og verk.
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu á tölulegum viðfangsefnum.
vega og meta tölulegar upplýsingar á gagnrýninn hátt.
skilja og vinna með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu.