Í áfanganum læra nemendur grunnatriðin í lestri byggingauppdrátta og fá þjálfun í að teikna verkstæðisunna byggingarhluta með áherslu á glugga, hurðir, innréttingar og tréstiga. Fjallað er um muninn á aðal- og séruppdráttum, mælikvarða þeirra, tilgang og einkenni. Gerð er grein fyrir hönnunarforsendum í byggingarreglugerð, stöðlum, verklýsingum og lögð áhersla á að þjálfa notkun og skilning á hvers konar verkgögnum sem tengjast verkstæðisunnum byggingarhlutum úr tré og tréefnum. Mikilvægt er að nemendur þjálfist í gerð rissteikninga við útfærslur deililausna og geri einfalda efnislista og kostnaðarútreikninga á grundvelli verkupplýsinga. Áfanginn er bæði ætlaður húsa- og húsgagnasmiðum og byggist aðallega á verkefnavinnu og útskýringum og umfjöllun kennara eftir því sem þörf er á. Mikilvægt er að nemendur tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð við upplýsingaleit og gagnaúrvinnslu.
Grunnteikning
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
verkstæðisunnum byggingarhlutum úr tré og helstu útfærslum þeirra
ákvæðum reglugerða um glugga, hurðir, innréttingar og tréstiga
íslenskum stöðlum um glugga, hurðir, innréttingar og tréstiga
stöðluðum málum á gluggum, hurðum, innréttingum og tréstigum
öllum gerðum uppdrátta og teikninga og öllum almennum teiknitáknum
fagheitum í glugga-, hurða -, innréttinga- og stigateikningum
lestri byggingauppdrátta
notkun byggingarreglugerðar
notkun vinnuteikninga og verklýsinga
blaðstærðum, mælikvörðum og teikniáhöldum
teikniaðferðum og teiknireglum fyrir verkstæðisunna byggingarhluta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera kostnaðarútreikninga og verklýsingar
vinna eftir reglugerðum
magntaka/vinna eftir teikningum og verklýsingum
öðlast innsýn í tæknilegar útfærslur vegna álags og einangrunar
teikna vinnuteikningar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
styðjast við Rb-blöð í upplýsingaleit og við gerð teikninga
lesa og vinna með teikningar af verkstæðisunnum byggingarhlutum
lesa og skilja merkingar á teikningum og meðfylgjandi verklýsingar
gera einfalda efnislista og kostnaðarútreikninga á grundvelli teikninga
rissa og teikna einfalda glugga, hurðir, innréttingar og tréstiga
gera rissmyndir og eftir atvikum nota fjarvídd til að sýna rýmisútfærslur
gera séruppdrætti og sýna deililausnir með tilheyrandi vikmálum
vinna og hugsa sjálfstætt
Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá