Í þessum áfanga er fjallað rafvélar þ.e. rafala, mótora og spenna bæði jafnstraums-, einfasa- og þriggjafasa riðstraums. Tengdar eru ýmsar rafvélar og gerðar prófanir og mælingar á þeim til skýrslugerðar. Fjallað er um merkiskilti og upplýsingarrit fyrir mismunandi rafvélar og notkun þeirra. Farið er í ræsingar og hraðastýringar rafhreyfla. Tengdir eru mjúkræsar og tíðnibreytar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
virkni ýmissa rafala-, mótora og spenna
virkni mjúkræsa og tíðnibreyta
tengingum og mælingum á þessum búnaði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tengja ýmisskonar rafvélar við mismunandi ræsibúnað og neysluveitur
tengja þriggjafasa rafmótora við hraðastýringar og mjúkræsa
framkvæma mælingar á þessum búnaði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leiðbeina um val á ýmsum rafvélum í mismunandi neysluveitum og annast uppsetningu þeirra
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er nánar tilgreint í kennsluálætlun og er í samræmi við skólanámskrá.