Nemendur þekki eðlis- og efnafræðieiginleika efna. Kynnist grunnþáttum eðlisfræði bygginga og einstökum vistfræðiþáttum, svo sem hita, raka og hljóðvist, grunnþáttum kraftafræðinnar, álagsstöðlum sem settir eru í byggingarreglugerð. Fjallað um áhrif náttúruafla á byggingar og byggingarefni og rætt um áhrif og afleiðingu loftmengunar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
efnisfræði í faginu og hafa yfirlit yfir þá krafta sem verka á mannvirki.
helstu byggingarefnum sem notuð eru í dag og eiginleikum þeirra.
helstu kröftum sem verka á byggingar.
áhrifum náttúruafla á byggingar og byggingarefni.
vistfræðiþáttunum hita, raka og hljóðvist í byggingum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa úr einföldum kraftreikningum.
leita upplýsinga í byggingarreglugerð varðandi vistfræðiþætti.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta styrkleika byggingarhluta út frá þeim kröftum sem á bygginguna verka.
meta burðarþol byggingarvirkja til að geta leyst algeng og hefðbundin verkefni við notkun byggingarefna.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.