Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1553251728.04

    Language and literature
    ENSK3LA05
    66
    enska
    Language and literature
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er unnið með fjölbreytt viðfangsefni sem tengjast menningu enskumælandi þjóða, s.s. bókmenntum, sögu, listum og samfélagsmálum.
    Lögð er áhersla á skilning, ritun, tal og almennt að auka hæfni í enskri málnotkun.
    ENSK2OR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - stjórnmálum, fjölmiðlum og sögu í þeim löndum þar sem tungumálið er talað
      - menningu þjóða þar sem tungumálið er talað sem og eigin menningu
      - inntaki textanna sem unnið er með
      - orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
      - hefðum sem eiga við um talað og ritað mál
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - skilja vel sérhæfða texta á sviði sem hann þekkir
      - skilja almennt talað mál, jafnvel þar sem frásögnin er ekki sett skipulega fram
      - lesa, sér til ánægju og upplýsingar, texta sem gerir kröfur til lesandans með tilliti til orðaforða, uppbyggingar, myndmáls og stílbragða
      - nota tungumálið á sveigjanlegan og árangursríkan hátt í samræðum
      - tjá sig af öryggi um margvísleg málefni, bæði almenn og persónuleg
      - beita ritmáli í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónulegum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni sem hann hefur þekkingu á
      - skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni
      - átta sig á mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli
      - greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta, s.s. í bókmenntaverkum og öðrum textum
      - leggja gagnrýnið mat á texta
      - hagnýta sér fræðitexta og meta heimildir á gagnrýninn hátt
      - beita málinu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónuleg, menningarleg, félagsleg og fjölmenningarleg efni
      - flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum
      - lýsa flóknum hlutum eða ferlum á fræðisviði sem hann þekkir vel
      - beita rithefðum sem við eiga við textasmíð, m. a. um inngang með efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag
      - vinna efni úr ýmsum upplýsingaveitum og fella saman í eina heild samkvæmt þeim hefðum sem gilda um heimildavinnu
      - skrifa gagnorðan, skilmerkilegan og vel uppbyggðan texta
      - skrifa texta með röksemdafærslu þar sem fram koma rök með og á móti og þau vegin og metin
      - tjá tilfinningar, nota hugarflugið og beita stílbrögðum, t.d. myndmáli og líkingamáli