Í áfanganum kynnast nemendur ólíkum skáldsögum sem hafa verið kvikmyndaðar. Nemendur lesa a.m.k. tvær skáldsögur og bera saman og greina kvikmyndaðar útgáfur af þeim.
Í áfanganum vinna nemendur fjölbreytt verkefni, bæði hópverkefni og einstaklignsverkefni.
Farið er í grunnþætti bókmenntagreiningar og nemendur þjálfaðir í að greina myndmál og skoða túlkun á ritverkum.
Lögð er áhersla á skilning, ritun, tal og almennt að auka hæfni í enskri málnotkun.
ENSK2OR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni um kvikmyndir og skáldsögur - hefðum sem eiga við um talað og ritað mál í leiktextum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- bera saman myndmál og ritmál - hlusta á talað mál í formi leikins efnis og ritaðs - lesa sér til ánægju og upplýsingar texta sem gerir kröfur til lesandans með tilliti til orðaforða, uppbyggingar, myndmáls og stílbragða - nota tungumálið á eðilegan og árangursríkan hátt í samræðum - tjá sig af öryggi um margvísleg málefni, bæði almenn og persónuleg - beita ritmáli í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónulegum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni tengd kvikmyndum og skáldsögum - skilja sér til gangs umfjöllun um flókið efni - greina mismundandi málssnið og stíl í töluðu máli - greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt og pólitískt samhengi í texta, s.s. í bókmenntaverkum og öðrum textum - leggja gagnrýnið mat á texta - hagnýta sér fræðitexta og meta heimildir á gagnrýninn hátt - taka fullan þátt í umræðum og rökræðum um persónuleg, menningarleg, félagsleg og fjölmenningarleg málefni - flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð og draga fram aðalatriði, mál rökstutt með dæmum og brugðist við fyrirspurnum - beita rithefðum sem við eiga í textasmíð, meðal annars um inngang, efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag - vinna úr ýmsum upplýsingum og fylgja reglum sem gilda um heimildavinnu - skrifa gagnorðan, skilmerkilegan og vel uppbyggðan texta - skrifa texta með röksemdafærslu þar sem fram koma rök með og á móti og þau vegin og metin - tjá tilfinningar, nota hugarflugið og beita stílbrögðum, t.d. myndmáli og líkingarmáli