Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1554119708.85

    Hugmyndavinna
    HÖTE2HU05
    3
    Hönnun og textíll
    hugmyndavinna og textíll
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum kynnist nemandinn undirstöðuatriðum hugmyndavinnu og helstu tækni og aðferðum í tengslum við vinnu með textíl. Hann vinnur eftir ferlinu frá því að hugmynd kviknar og þar til hún hefur fengið ákveðið form. Lögð er áhersla á sambandið milli hugmyndar, hráefnis, tækni, aðferða og listrænnar sköpunar, greiningar og túlkunar. Hver nemandi kynnir verkefni sín og þær lausnir sem notaðar eru. Áhersla er lögð á umræður um verkefnin og að nemendur læri hver af öðrum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • sambandi milli hugmyndar, hráefnis, tækni, aðferða og niðurstöðu
    • litum, gildi þeirra og notkun í umhverfi okkar
    • hvernig náttúran og eigin menning er uppspretta hugmynda við eigin vinnu og hönnuða almennt
    • heildar hönnunarferlinu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með hönnun sína í myndvinnslu og munsturforritum
    • tileinka sé nýjungar í gegnum upplýsingamiðla, handbækur og fagtímarit
    • nota mismunandi litasamsetningar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • þróa hugmynd eftir markvissu þróunarferli
    • setja fram hugmynd munnlega, skriflega og á myndrænan hátt
    • nýta sér náttúru og eigin menningu sem uppsprettu hugmynda við eigin vinnu
    • rökstyðja eigið verk, taka gagnrýni og gagnrýna aðra á jákvæðan hátt
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og er í samræmi við skólanámskrá.