Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1557140898.99

    Húsgagnaviðgerðir
    HGVG3HS02(AB)
    1
    Húsgagnaviðgerðir
    Húsgagnaviðgerðir
    Samþykkt af skóla
    3
    2
    AB
    Í áfanganum læra nemendur um orsakir og eðli skemmda á húsgögnum, greiningu þeirra og hvernig ber að standa að viðgerðum með hliðsjón af þeirri efnisnotkun og vinnuaðferðum sem upphaflega voru viðhafðar. Jafnframt kynnast þeir forvörnum varðandi húsgögn og viðmiðum sem skapast hafa um hversu langt skal ganga í að nota gamalt handverk og eldri efni við viðhald og endurnýjun á eldri húsgögnum. Lögð er áhersla á að nemendur fái yfirsýn yfir fagsviðið og geti komið með heildar‐ lausnir fyrir viðskiptavini. Jafnframt er mikilvægt að nemendur geri sér grein fyrir takmörkunum sínum í húsgagnaviðgerðum. Kennslan er aðallega verkleg og fer fram með sýnikennslu og minni verkefnum þar sem nemendur læra rétta efnisnotkun og vinnuaðferðir.
    Æskilegt er að nemendur taki þennan áfanga á lokaönn námsins.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • gömlu handverki.
    • eldri efnum til viðhalds.
    • þeim takmörkunum sem eru við endurnýjun á eldri húsgögnum.
    • því hvar hægt er að nálgast upplýsingar um eldri aðferðir og efni.
    • því hvernig hægt er að nota netið til að kaupa viðgerðarefni.
    • áhöldum og tækjum sem notuð eru í viðgerða‐ og breytingarvinnu á húsgögnum.
    • hefðbundnum handverkfærum til viðgerða og breytinga.
    • heppilegum trésmíðavélum, rafmagns‐ og lofthandverkfærum.
    • efnum sem notuð eru í viðgerðir og breytingar á húsgögnum.
    • eldri límgerðum og yfirborðsefnum fyrir húsgögn.
    • límingu og spónlagningu við viðgerðir og breytingar á húsgögnum.
    • eldri lím‐ og spónlagningaaðferðum á húsgögnum.
    • formlímingu, mótasmíði og límpressun smíðishluta.
    • yfirborðsmeðferð við viðgerðir og breytingar á húsgögnum.
    • eldri aðferðum við yfirborðsmeðferð á húsgögnum.
    • vistvænum aðferðum við yfirborðsmeðferð á húsgögnum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðhöndla gömul húsgögn.
    • koma með og kynna lausnir á viðgerðum húsgagna.
    • blanda liti og nota efnabæskerfið og geti líkt eftir lit á húsgagni.
    • taka úr fyrir lömum og skrám og öðrum smíðisfestingum.
    • leggja á síkling og nota hann á ómeðhöndlað tré og lakkað yfirborð.
    • skera út í tré eftir einföldum fyrirmyndum.
    • beita einfaldri spón‐ og viðarinnlagningu.
    • vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja rétta viðartegund, spón og plötuefni með hliðsjón af verkefni.
    • vera fær um, í samvinnu við skyldar fagstéttir, að velja rétt efni og festingar.
    • velja og halda við áhöldum og tækjum til viðgerða og breytinga.
    • beita öryggisreglum og öryggisbúnaði fyrir viðkomandi áhöld og tæki.
    • velja lím, límáburðartæki og þvingur með hliðsjón af verkefni.
    • rökstyðja val á efnum og aðferðum út frá viðkomandi húsgagni.
    • beita öryggisreglum og öryggisráðstöfunum við límingu og spónlagningu.
    • velja slípiaðferð og yfirborðsmeðferð með hliðsjón af verkefni.
    • beita öryggisreglum og nota hlífðarbúnað við yfirborðsmeðferð á húsgögnum.
    • gera við húsgögn frá mismunandi tímum.
    • velja efni og aðferðir í samræmi við hefðir og verndunarsjónarmið.
    • hirða um áhöld og tæki og brýna algengustu skurðarverkfæri.
    • gera við skemmdir í gegnheilu tré og viðarspóni.
    • smíða hefðbundnar samsetningar í gegnheilt tré og plötuefni.
    • líma spón í höndum með límhamri og heitlími.
    Símat sem byggir á verkefnum, skyndipróf og/eða lokapróf.