Lögð er áhersla á vinnu með tilbúin snið og grunnsnið. Kennt að taka mál og taka snið upp úr sniðablöðum og að nota þau. Kennt að leggja snið á efni og merkja fyrir saumförum. Nemendur læra á saumavél, sauma prufur og einfaldar flíkur. Lögð er áhersla á að nemendur læri að fylgja eftir hugmynd að fullunnu verki og temji sér sjálfstæð og vönduð vinnubrögð.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
heiti og útliti ólíkra sniðhluta.
að ákveða rétta sniðstærð eftir málum.
að vinna með grunnsnið.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna út frá tilbúnum sniðum.
nota saumavélina ásamt fylgihlutum hennar.
reikna út efnismagn í flík eftir sniðum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: