Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1557757851.55

    Plötu- og grindarhúsgögn
    PLGR3HS06(AB)
    1
    Plötu- og grindarhúsgögn
    Plötu- og grindarhúsgögn
    Samþykkt af skóla
    3
    6
    AB
    Í áfanganum er kennd smíði húsgagna úr trégrind og plötuefni með áherslu á samsetningar, spónlagningu og yfirborðsmeðferð. Um er að ræða húsgögn eins og borð, skápa, kommóður og rúm þar sem grindin eða undirstöðurnar eru jafnan úr gegnheilu tré með áföstu eða innfelldu spónlögðu eða máluðu plötuefni. Nemendur læra um mismunandi útfærslur húsgagna af þessari gerð, smíðistengi, efnisnotkun og framleiðsluferli m.m. Í áfanganum er lögð áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og að nemandi geti gengið úr skugga um gæði þeirra smíðaefna sem unnið er úr og að mál á einstökum smíðishlutum standist fyrir endanlega samsetningu. Kennslan er að verulegu leyti verkleg og byggist á smíðishlutum þar sem komið er inn á alla verkþætti.
    INRE2SA06AB
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • stöðluðum stærðum í húsgagnaframleiðslu.
    • framleiðsluferli.
    • gerð efnislista.
    • efnisnotkun og nýtingu.
    • yfirborðsmeðferð húsgagna.
    • öryggisreglum og öryggisbúnaði.
    • smíðaefnum sem notuð eru í plötu‐ og grindarhúsgögn.
    • viðarspæni, eiginleikum hans og notkunarsviði.
    • spónlagningu á gegnheilt tré og plastlímingar á plötuefni.
    • smíðistengjum sem notuð eru við fjöldaframleiðslu húsgagna.
    • áhöldum og tækjum sem notuð eru við smíði húsgagna.
    • mismunandi þvingum og pressum til að líma spón og til samsetninga.
    • vélbúnaði til að bora og taka úr fyrir smíðisfestingum.
    • hálf‐ og alsjálfvirkum trésmíðavélum í húsgagnaframleiðslu.
    • öryggisreglum og öryggisbúnaði viðkomandi áhalda og tækja.
    • aðferðum til að kantlíma og spónleggja bogna og hringlaga smíðishluti.
    • öryggisreglum og öryggisbúnaði sem snertir límingar og samsetningar.
    • yfirborðsmeðferð plötu‐ og grindarhúsgagna.
    • slípingu og yfirborðsmeðferð bæði í höndum og með vélum.
    • vistvænni yfirborðsmeðferð við húsgagnaframleiðslu.
    • öryggisreglum og öryggisbúnaði við yfirborðsmeðferð.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna eftir reglugerðum.
    • vinna eftir teikningum og verklýsingum.
    • vinna með mismunandi útfærslur húsgagna.
    • vinna og hugsa sjálfstætt.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja gegnheilt tré og plötuefni með hliðsjón af vinnslu og notkun.
    • gera grein fyrir kröfum um ástand og gæði viðar og plötuefnis.
    • velja glerjunaraðferð og gler fyrir glerskápa og glerborð.
    • velja heppileg áhöld og tæki bæði til fjölda‐ og stykkjaframleiðslu.
    • velja áhöld og sérhæfðar trésmíðavélar til töppunar og fræsinga.
    • öðlast innsýn í gerð og virkni loft‐ og vökvakerfa við húsgagnaframleiðslu.
    • beita lím‐ og spónlagningartækni fyrir plötu‐ og grindarhúsgögn.
    • velja lím fyrir spónlagningu og þekkja áhrif loftraka á límgæði.
    • velja heppilegt slípi‐, litunar‐ og lökkunarkerfi með hliðsjón af verkefni.
    • smíða samsett grindar‐ og plötuhúsgögn í höndum og með vélum.
    • forma og spónleggja mismunandi plötuefni til frekari vinnslu.
    • smíða íhluti í grindar‐ og plötuhúsgögn og setja saman.
    • smíða og setja upp skúffur með tilheyrandi smíðisfestingum.
    • smíða gluggasprossa og glerja skápahliðar og skápahurðir.
    • slípa og yfirborðsmeðhöndla plötu‐ og grindarhúsgögn.
    • staðsetja og taka úr fyrir smíðisfestingum í höndum og með vélum.
    • vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað.
    Verkefnabundið símat