Í áfanganum er fjallað um uppbyggingu og smíði sethúsgagna eins og hægindastóla, sófa og borðstofustóla. Gerð er grein fyrir mismunandi grindarútfærslum fyrir m.a. hefðbundna bólstrun og nemendur fá innsýn í álag á sethúsgögn og kröfur um styrkleika, endingu og efnisgæði. Einnig kynnast þeir nýlegri framleiðsluaðferðum á sethúsgögnum eins og formlímingu og notkun svampefna í bólstrun. Lögð er áhersla á að nemendur þjálfist bæði í vélavinnu og handverki með áherslu á brýnslu, formun og uppsetningu skurðarverkfæra til fræsinga, gerð skapalóna, tappanir og smíðistengi. Kennslan er aðallega verkleg og nemendur smíða stól fyrir hefðbundna bólstrun og/eða borðstofustól.
INRE2SA06AB
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
styrkleika og endingu/efnisgæðum húsgagna.
framleiðsluaðferðum.
efnisnotkun og nýtingu.
öryggisreglum og öryggisbúnaði.
smíðaefnum sem notuð eru í sethúsgögn.
harðviði sem vex á norðlægum slóðum.
notkunarmöguleikum harðviðar í smíði sethúsgagna.
uppbyggingu viðar með tilliti til álags og styrkleika.
smíðaefnum sem notuð eru í formlímingu.
áhöldum og tækjum sem notuð eru við smíði sethúsgagna.
uppbyggingu og notkun borðfræsara í húsgagnasmíði.
skurðarverkfærum til vélavinnslu, brýnslu þeirra og uppsetningu.
málmum sem notaðir eru í skurðarverkfæri og eiginleika þeirra.
helstu skurðarverkfærum í borðfræsara og uppbyggingu þeirra.
slípun, formun og viðhald skurðarverkfæra í borðfræsara.
formlímingu húsgagna með áherslu á sethúsgögn.
formun húsgagna og íhluta með spæni, plötuefni og heiltré.
samlímingu á tré sem notað er í bogna og beina íhluti.
öryggisreglum og öryggisbúnaði sem snertir lím og meðferð þess.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna vélavinnu og meðhöndla handverkfæri.
vinna eftir teikningum og verklýsingum.
vinna með mismunandi útfærslur húsgagna.
vinna og hugsa sjálfstætt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
öðlast innsýn í mótun viðar með gufusuðu og samkýlingu.
rökstyðja val á skurðarverkfærum, skurðarstáli og skurðarhornum.
gera grein fyrir vali á handvirkri eða vélrænni mötun smíðishluta.
velja sniðtennur fyrir ákveðið verkefni út frá gæðum og afköstum.
beita öryggisreglum og nota öryggisbúnað viðkomandi áhalda og tækja.
velja snúnings‐ og framfærsluhraða með hliðsjón af verkefni.
velja rétt lím fyrir tiltekið verkefni á grundvelli vörumerkinga.
velja límáburðartæki, þvingur og pressur fyrir smíði sethúsgagna.
smíða mismunandi sethúsgögn í höndum og með vélum.
smíða íhluti í sethúsgögn og festa saman með mismunandi hætti.
smíða og nota skapalón til að forma íhluti í sethúsgögn.
setja upp skurðarverkfæri og aukabúnað á borðfræsara.
staðsetja og taka úr fyrir smíðistengjum í höndum og með vélum.
búa til brýnsluskapalón fyrir sniðtönn eftir fyrirmynd og slípa.
yfirborðsmeðhöndla sethúsgögn með hefðbundnum og vistvænum efnum.
vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað.