Í áfanganum vinna nemendur verkefni sem felur í sér samþættingu þekkingar og færni sem aflað hefur verið í skóla og á vinnustað á námstímanum. Áhersla er lögð á skipulagningu, framkvæmd, eftirlit, skráningu og rökstuðning en að öðru leyti er ekki um að ræða fyrirfram ákveðna verkþætti. Reynt er að líkja eftir aðstæðum í atvinnulífinu og því hefur nemandi aðgang að öllum fyrirliggjandi gögnum, efni, áhöldum og tækjum meðan á verkefninu stendur. Um er að ræða verklegan hluta sveinsprófs í húsgagnasmíði. Þar sem verkefninu er ætlað að endurspegla raunverulegar aðstæður er æskilegt að tíminn sem ætlaður er til þess dreifist ekki á langt tímabil.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
skipulagningu verkefna.
upplýsingaöflun.
áætlanagerð.
byggingarreglugerð og skipulagslögum.
öryggisreglum og öryggisbúnaði.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna í samræmi við lög, reglugerðir og staðla.
vinna eftir séruppdráttum og deilum.
vinna sjálfstætt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
undirbúa á eigin spýtur verkefni sem honum er fengið.
geti unnið verkáætlun og afmörkuð hönnunargögn.
geti gert efnis‐ og tímaáætlun.
geti valið heppileg áhöld og tæki fyrir einstök verkefni.
geti aflað og nýtt upplýsingar um útfærslur, efni, áhöld og tæki.
framkvæma verkefni sjálfstætt í samræmi við áætlanir.
fylgi fyrirliggjandi verkáætlun og hönnunargögnum.
vinni í samræmi við tímaáætlanir.
geti unnið í samræmi við lög, reglugerðir og staðla.
taki mið af gæðakröfum og viðurkenndu verklagi.
vinni í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað.
gera öðrum grein fyrir verkefninu og framkvæmd þess.
geti rökstutt val á aðferðum, efnum, áhöldum og tækjum.
geti gert grein fyrir efnisafföllum.
geti lagt mat á verkáætlun og hönnunargögn vegna verksins.
geti metið gæði verks með hliðsjón af lögum, reglugerðum og stöðlum.
geti gert grein fyrir notkun og viðhaldi á áhöldum og tækjum.