Í áfanganum öðlast nemendur enn frekari þekkingu og þjálfun í lestri og gerð húsgagnateikninga með áherslu á flóknari útfærslur, bogin form, smíðistengi og sjálfstæð vinnubrögð. Teiknaðar eru útlits‐ og vinnuteikningar úr verkefnasafni arkitekta og hönnuða af viðurkenndum húsgögnum. Meiri áhersla er lögð á að nemendur geti gert rúmmyndir af húsgögnum sem sýna form þeirra og lögun og fái æfingu í gerð einfaldra verklýsinga á grundvelli teikninga. Í áfanganum kynnast nemendur einnig notkun tölvutækni við gerð og miðlun teikninga og annarra hönnunargagna. Áfanginn er ætlaður húsgagnasmiðum og byggist að mestu á verkefnavinnu auk þess sem nemendur læra um viðmót og uppbyggingu algengustu teikniforrita.
TEIK2HS04BB
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ýmsum útfærslum í húsgagnasmíði.
notkun og miðlun tölvuteiknaðra uppdrátta og annarra hönnunargagna.
stöðluðum málum (stærðum) í hönnun.
uppbyggingu og samsetningu á flóknari gerðum húsgagna.
stöðluðum málum á húsgögnum sem ætluð eru til almennra nota.
útfærslum á flóknari samsetningum og smíðistengjum.
upplýsingum og leiðbeiningum um gerð og viðhald húsgagna.
öllum gerðum uppdrátta og teikninga og almennum teiknitáknum.
fagheitum og skilgreiningum í flóknari húsgagnateikningum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera grunn‐ kostnaðarútreikninga og verklýsingar.
vinna eftir reglugerðum.
lesa teikningar og verklýsingar.
lesa og skilja merkingar á teikningum og meðfylgjandi verklýsingum.
vinna eftir teikningum og verklýsingum.
teikna/rissa rúmmyndir.
vinna og hugsa sjálfstætt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
öðlast innsýn í tæknilegar útfærslur vegna flóknari samsetninga.
lesa og vinna með flóknari teikningar af húsgögnum.
gera einfalda verklýsingu með hliðsjón af húsgagnateikningu.
gera tíma‐ og kostnaðaráætlun fyrir smíði á flóknara húsgagni.
beita algengustu teikniforritum á tölvu og þekkja notkun þeirra við gerð og miðlun hönnunaruppdrátta.
teikna flestar gerðir húsgagna og hanna sveinsprófsverkefni.
gera litaðar rúmmyndir sem sýna form og útlit húsgagna.
gera fríhendisrissmyndir, flatar‐ og rúmteikningar af húsgögnum.
gera sniðmyndir, skurði og hlutamyndir af húsgögnum með málvikum.
setja fram hugmynd að húsgagni og vinna úr henni vinnuteikningar.