Áfanginn er ætlaður byrjendum í íslensku og engrar kunnáttu er krafist. Lögð er áhersla á menningartengt efni og daglegt umhverfi, unnið með samtöl, kurteisisvenjur, hefðir og matarvenjur, auk almennrar málfræði og orðaforða, svo nemendur geti tileinkað sér undirstöðuatriði tungumálsins. Nemendur eru þjálfaðir í lesskilningi ásamt samskiptaþáttunum tali, hlustun og ritun.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná markmiðum áfangans.
grundvallarþáttum íslenska málkerfisins.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt.
fylgja einföldum fyrirmælum og nota helstu kveðjur og kurteisisávörp.
lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengist nemandanum, umhverfi hans, daglegu lífi og áhugamálum og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni.
taka þátt í einföldum samræðum um efni sem tengist innihaldi áfangans.
segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér og því sem tengist daglegum venjum og umhverfi nemandans.
skrifa stuttan, einfaldan texta um sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi.
beita orðaforða, málnotkun og framburði á sem réttastan hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli.
skilja einfalda texta.
taka þátt í einföldum samræðum.
segja frá persónulegum högum sem og einföldum staðreyndum um kunnugleg efni.
rita íslensku á mjög einföldu formi.
Áfanginn er símatsáfangi. Matsþættir eru lagðir fyrir yfir önnina samkvæmt kennsluáætlun.