Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1558360995.98

    Íslenska sem annað mál - 1B
    ÍSAN1ÍB05(AT)
    12
    íslenska sem annað mál
    Íslenska sem annað mál - B
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    AT
    Áfanginn er ætlaður byrjendum í íslensku og er engrar kunnáttu krafist. Megináhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Áhersla er lögð á réttan framburð, tal og uppbyggingu orðaforða sem tengist daglegu lífi og nánasta umhverfi nemandans.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná markmiðum áfangans.
    • fyrstu þrepum í grunnþáttum íslenska málkerfisins, svo sem hljóðkerfi, málfræði og uppbyggingu setninga.
    • samskiptavenjum á Íslandi, siðum og menningu þjóðarinnar sem lúta að daglegu lífi og nánasta umhverfi nemandans.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt.
    • fylgja einföldum fyrirmælum, reka einföld erindi og geta skilið helstu kveðjur og kurteisisávörp.
    • lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengist honum sjálfum og daglegu lífi í íslensku þjóðfélagi og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni.
    • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og beita kurteisis- og málvenjum við hæfi.
    • segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, fjölskyldu sinni og atburðum daglegs lífs með því að beita orðaforða og framburði á sem réttastan hátt.
    • skrifa stuttan einfaldan texta um sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi, fylla út einföld eyðublöð, senda tölvupóst, skrifa bréf o.fl..
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • eiga í einfaldum tjáskiptum á íslensku.
    • greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli.
    • beita mismunandi aðferðum til að skilja einfalda texta.
    • taka þátt í einföldum samræðum og nota mismunandi orðaforða, kveðjur og samskiptaform eftir aðstæðum.
    • segja frá persónulegum högum sem og einföldum staðreyndum um kunnugleg efni.
    • gera grein fyrir einföldum atburðum í rituðu máli.
    Áfanginn er símatsáfangi. Matsþættir eru lagðir fyrir yfir önnina samkvæmt kennsluáætlun.