Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1558361214.89

    Íslenska sem annað mál - taláfangi 1A
    ÍSAT1ÍA03(AT)
    1
    Íslenska sem annað mál - taláfangi
    Taláfangi - A
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    AT
    Áfanginn er ætlaður byrjendum í íslensku og engrar kunnáttu er krafist. Áhersla er lögð á að byggja upp orðaforða sem varðar daglegt líf í íslensku samfélagi, mynda einfaldar setningar og taka þátt í einföldum samræðum, sem gerir þeim kleift að bjarga sér af eigin rammleik við algengar aðstæður.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná markmiðum áfangans.
    • grundvallarþáttum íslenska málkerfisins.
    • framburði íslenskra málhljóða.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt.
    • fylgja einföldum fyrirmælum.
    • lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengist nemandanum, umhverfi hans og áhugamálum og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni.
    • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á.
    • segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, fjölskyldu sinni og athöfnum og atburðum daglegs lífs með því að beita orðaforða og framburði á sem réttastan hátt.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli.
    • skilja einfalda texta.
    • taka þátt í einföldum samræðum.
    • segja frá persónulegum högum sem og einföldum staðreyndum um kunnugleg efni.
    Áfanginn er símatsáfangi. Matsþættir eru lagðir fyrir yfir önnina samkvæmt kennsluáætlun.