Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1558361913.4

    Íslenska sem annað mál - 1G
    ÍSAN1ÍG05(BT)
    17
    íslenska sem annað mál
    Íslenska sem annað mál - G
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    BT
    Áfanginn er ætlaður nemendum sem hafa lokið einni önn í íslensku. Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur auki við orðaforða um daglegt líf á Íslandi. Miðað er að því að nemendur geti tileinkað sér daglegt mál með þjálfun í tali, hlustun og ritun.
    Ein önn í íslensku sem annað mál við Tækniskólann eða annað sambærilegt nám.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná markmiðum áfangans.
    • grundvallarþáttum íslenska málkerfisins.
    • sínu nánasta umhverfi og samfélagi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni.
    • lesa texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengist nemandanum, umhverfi hans, daglegu lífi og áhugamálum og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni.
    • taka þátt í samræðum um efni sem tengist innihaldi áfangans.
    • nota aukinn orðaforða til að segja frá sjálfum sér og athöfnum og atburðum daglegs lífs.
    • geta skrifað texta um sjálfan sig, daglegt líf og sitt nánasta umhverfi.
    • beita orðaforða, málnotkun og framburði á sem réttastan hátt.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli.
    • skilja einfalda texta.
    • taka þátt í einföldum samræðum.
    • segja frá persónulegum högum sem og einföldum staðreyndum um kunnugleg efni.
    • rita íslensku á einföldu formi.
    Áfanginn er símatsáfangi. Matsþættir eru lagðir fyrir yfir önnina samkvæmt kennsluáætlun.