Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1558362599.12

    Íslenska sem annað mál - 2B
    ÍSAN2ÍB05(CT)
    4
    íslenska sem annað mál
    Íslenska sem annað mál - B
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    CT
    Áfanginn er ætlaður nemendum sem hafa lokið tveimur önnum í íslensku. Lögð er áhersla á daglegt líf, s.s. umhverfi, fjölskyldu, menningu, atvinnu og ferðalög. Samhliða er málfræði skoðuð og uppbygging tungumálsins.
    Tvær annir í íslensku sem annað mál við Tækniskólann eða annað sambærilegt nám.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná markmiðum áfangans.
    • sínu nánasta umhverfi og samfélagi.
    • samskiptavenjum í íslensku þjóðfélagi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um efni sem tengist áfanganum.
    • lesa texta sem sem tengist nærumhverfi nemandans og þátttöku í samfélaginu.
    • taka þátt í samræðum um efni sem tengist innihaldi áfangans.
    • segja frá sjálfum sér, nánasta umhverfi sínu, væntingum, þörfum, athöfnum og atburðum daglegs lífs í íslensku samfélagi.
    • geta skrifað texta um sjálfan sig, daglegt líf og sitt nánasta umhverfi.
    • beita orðaforða, málnotkun og framburði á sem réttastan hátt.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina upplýsingar í mæltu máli.
    • skilja texta sem tengist viðfangsefninu.
    • taka þátt í samræðum um umhverfi sitt og þátttöku í samfélaginu.
    • segja frá persónulegum högum og væntingum.
    • rita íslensku á sem vandaðastan hátt.
    Áfanginn er símatsáfangi. Matsþættir eru lagðir fyrir yfir önnina samkvæmt kennsluáætlun.