Nemandinn sækir 20 vikna nám í húsgagnabólstrun í Skive Technical School í Danmörku. Hægt er að taka námið í einni 20 vikna lotu eða skipta því í tvær 10 vikna lotur. Lögð er áhersla á iðnaðarbólstrun og hönnun, hefðbundna uppbyggingu við bólstrun, vinna með leður sem áklæði og festingu þess, uppbyggingu á hægindastól með háu baki og bólstrun hans.
Búinn með aðrar greinar brautarinnar og kominn á samning.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að velja efni miðað við viðeigandi upplýsingar og með tilliti til tæknilegra, umhverfislegra og atvinnutengdra þátta, auk fjárhagslegra þátta.
að nýta þekkingu sína á erlendum hráefnum, efnisflæði, svo og erlendum starfsháttum.
að velja úr ýmsum gerðum leðurs með tilliti til hvernig á að nota það.
að veita ráðleggingar og leiðbeina viðskiptavinum og notendum um efnisval, svo og um notkun og viðhald húsgagna.
ólíkum leðurgerðum, notkunarmöguleikum, viðhaldi þeirra, hreinsun og umhirðu.
vöruþróun, að nota vinnuteikningar, málsettar teikningar og hugsanlega vinnulíkön, og geti jafnframt gert grein fyrir þróun vörunnar og kjörnýtingu.
líffærafræði mannsins í sitjandi stöðu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
útbúa nýjar frummyndir samkvæmt ólíkum fyrirmyndum.
útbúa og gera við allar algengar afurðir innan fagsins og að þær séu þægilegar út frá vinnuvistfræðilegu sjónarhorni og réttrar setstöðu.
undirbúa og skipuleggja eigin vinnu/verkferli.
gera grein fyrir vali á vélum og verkfærum sem notuð eru í ferlinu.
velja og nota ýmiss konar saumatækni við að sauma áklæði.
velja vinnuaðferð með hliðsjón af þekkingu sinni á efnum og áhöldum.
reikna út efnisnotkun og verð.
velja vinnuaðferð með hliðsjón af þekkingu sinni á efnum og áhöldum.
setja sér markmið út frá almennum reglum greinarinnar.
beita mæli- og skurðarverkfærum.
stjórna, viðhalda,bilanagreina og stilla vélar sem notaðar eru í faginu.
beita djúpheftitækni og hafa þekkingu á stærðarhlutföllum í skiptingunum.
beita sníðaaðferðum, m.a. handskurði og útskurði.
rökstyðja kosti og galla á efnisvali sínu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja og útfæra öll verkefni sjálfstætt.
rökstyðja val sitt með hliðsjón af notandanum.
vinna frummyndir og bólstrun samkvæmt vinnuteikningu eða með því að mæla stök verkefni og innréttingar í ökutækjum.
bólstra húsgögn samkvæmt vinnuteikningu.
útbúa og gera við allar algengar afurðir innan fagsins m.a. með tilliti til að þær séu þægilegar út frá vinnuvistfræðilegu sjónarhorni og réttrar setstöðu.
nota einfaldar vinnuáætlanir til að lýsa undirstöðuþáttum og þrepum í hönnunar- eða uppkastsferli, m.a. með þrívíddarteikningu.
reikna út efnisnotkun og afgang vegna tiltekins verkefnis.
byggja upp bílsæti/bólstruð húsgögn úr svampi, út frá eigin teikningu.
útbúa einfaldar skurðarfrummyndir/módel úr svampi, svo og áklæði í bifreiðar/bólstruð húsgögn.
sauma og festa einfalda klæðningu í innanverðar bifreiðir/bólstruð húsgögn með áherslu á festingar og frágang.
geta gert frummyndir/sniðmát og gert grein fyrir aðferðum við máltöku og mótun frummynda.
geta gert frumgerð í fullri stærð, ásamt undirþáttum, sem varpa ljósi á endanlegt útlit, vöruþróun og vöruframvindu.
geta búið til frummyndir fyrir svamp og áklæði á hægindastól.
byggja upp stól með völdum efnum fyrir lendastuðning.
klæða stól samkvæmt tilteknum gæðakröfum varðandi lögun áklæðisins og frágang.
beita hefðbundnum iðnaðar-vinnuaðferðum og nota efni og tækni sem notuð er á sviði húsgagnabólstrunar.
velja og nota efni sjálfstætt, geti beitt réttri vinnutækni og notað verkfæri og vélar rétt.
reikna út efnisnotkun á tilteknu efni með tilliti til fjöldaframleiðslu.
réttlæta val á efni í út frá kostum og göllum.
beita hefðbundnum vinnuaðferðum og tækni sem notuð er í iðnaði á sviði húsgagnabólstrunar.
geta fundið galla á vöru, bæði meðan hún er í vinnslu og þegar hún er tilbúin.