Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1567604445.08

    Undirbúningur B
    ÍSLE1UB05
    132
    íslenska
    unglingabókmenntir
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum eru nemendur þjálfaðir í ólíkum gerðum ritsmíða og ýmsu sem tengist málnotkun og tjáningu. Nemendur rifja upp helstu hugtök bókmenntafræði og bragfræði sem og helstu stafsetningarreglur, málfræðihugtök og grunnatriði setningafræði. Í áfanganum lesa nemendur smásögur, skáldsögu, Íslendingaþætti og ljóð sem og annað efni sem stuðlar að aukinni lestrarfærni og getu til túlkunar. Nemendur styrkja eigin málfærni með því að flytja efni í ræðu og riti.
    Fyrir nemendur sem fá C á grunnskólaprófi eða hafa klárað ÍSLE1UA05.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • málfræðihugtökum og ritreglum sem nýtast í tal- og ritmáli.
    • mismunandi tegundum bókmennta og grunnhugtökum í bókmenntafræði.
    • helstu hugtökum er tengjast ritgerðasmíð.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • rita vel uppbyggðan texta.
    • nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða.
    • nýta málfræðihugtök og ritreglur til að efla eigin málfærni.
    • lesa sér til gagns og gamans nytjatexta og bókmenntaverk frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra á fræðilegan hátt.
    • flytja af nokkru öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tilteknum málefnum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna í tengslum við námsefnið og sýna nokkur tilbrigði í málnotkun.
    • beita skýru og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti.
    • taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu.
    • styrkja eigin málfærni með því að nýta sér málfræðiupplýsingar og ritreglur.