Í áfanganum er farið í forgangsröð aðgerða, almenn brot, bókstafareikning, jöfnur, prósentur og hnitakerfi. Stefnt er að því að byggja upp jákvætt viðhorf og efla sjálfstraust nemenda hvað varðar stærðfræði.
Eingöngu fyrir þá sem fengu D á grunnskólaprófi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirstöðuatriðum um talnameðferð.
aðgerðum á heilum tölum, forgangsröð aðgerða og notkun sviga.
styttingu og lengingu brota, samnefnara, samlagningu brota og margföldun brota.
öllum algengum prósentureikningi.
undirstöðuatriðum algebru og hvernig bókstafir eru notaðir til þess að tákna stærðir.
rétthyrndu hnitakerfi í fleti.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja fram og rökstyðja niðurstöður sínar með skýrum hætti
nota vasareikni við lausn viðfangsefna
nota gagnvirk forrit til þjálfunar í reikningi
nota stærðfræðileg vinnubrögð
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fást við stærðfræðileg viðfangsefni dagslegs lífs.
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og geta unnið með þau.
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra á viðeigandi hátt.
greina og hagnýta upplýsingar á sviði stærðfræði sem birtast m.a. í fjölmiðlum.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat. Vinna nemenda í kennslustundum er metin, lögð eru fyrir hlutapróf og verkefni. Lokapróf er í áfanganum