Áfanginn er fyrir nemendur á náttúrufræðibraut og viðskipta-og hagfræðibraut. Í áfanganum er lögð áhersla á vinnubrögð í stærðfræði. Farið verður í algebru- og talnareikning, hlutfalla-og prósentureikningur og rúmfræði í fleti.
Fyrir þá sem fengu C á grunnskólaprófi eða hafa klárað STÆR1UA05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnþáttum stærðfræðinnar
almennum talnareikningi með heilum tölum, ræðum og óræðum
hlutfalla- og prósentureikningi
velda- og rótarreikningi
rúmfræði í fleti
margliðum og hornaföllum
tengslum jafna við föll
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota táknmál stærðfræðinnar
vinna með tölur, jöfnur og algebru
vinna með prósentu-og hlutfallareikning
gera munnlega eða skriflega grein fyrir niðurstöðum sínum og aðferðum
nota reiknivél og önnur hjálpartæki við lausn stærðfræðilegra viðfangsefna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra á viðeigandi hátt
beita skipulegum aðferðum við leit að lausnum á þrautum og geta útskýrt aðferðir sínar
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og geta unnið með þau
átta sig á og gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna
beita gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna og þrauta
geta fylgt og skilið röksemdafærslur í mæltu máli og í texta
geta greint og hagnýtt upplýsingar á sviði stærðfræði sem birtast m.a. í fjölmiðlum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat. Vinna nemenda í kennslustundum er metin, lögð eru fyrir hlutapróf og verkefni. Lokapróf er í áfanganum.