Áframhaldandi vinna með táknmál stærðfræðinnar. Unnið með annars stigs jöfnur, ójöfnur og margs konar föll. Áhersla lögð á skipulögð stærðfræðileg vinnubrögð.
Fyrir þá sem fengu A eða B á grunnskólaprófi eða hafa klárað STÆR1AJ05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tölum, mengjum og algebru
algengum reiknireglum og algebrubrotum
jöfnum og ójöfnum af fyrsta og öðru stigi
föllum
margliðum
logra og vísisföllum
veldareglum og venslum velda og róta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota táknmál stærðfræðinnar
vinna með tölur og algebru, almenn brot, hlutföll og prósentur
leysa jöfnur og ójöfnur á fyrsta og öðru stigi
vinna með föll, margliður, logra- og vísisföll
beita stærðfræðilegri framsetningu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra á viðeigandi hátt
beita skipulegum aðferðum við leit að lausnum á þrautum og geta útskýrt aðferðir sínar
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og geta unnið með þau
geta greint og hagnýtt upplýsingar á sviði stærðfræði sem birtast m.a. í fjölmiðlum
átta sig á og gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna
beita gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna og þrauta
geta fylgt og skilið röksemdafærslur í mæltu máli og í texta
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat. Vinna nemenda í kennslustundum er metin, lögð eru fyrir hlutapróf og verkefni. Lokapróf er í áfanganum.