Í áfanganum er farið í grunnatriði danskrar málfræði, unnið með létta texta til að auka lesskiling og orðaforða. Stefnt er að því að gera nemendur færa um að skilja tiltölulega einfalda, almenna texta. Hlustun er þjálfuð. Unnið er með grunnatriði í danskri málfræði. Dönsk menning er kynnt og áhugi á henni vakinn, og unnið að því að gera viðhorf nemenda til tungumálsins jákvæða.
Eingöngu fyrir nemendur sem fengu D á grunnskólaprófi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
danska menningarsvæðinu
orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
grundvallarþáttum málkerfisins
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál um kunnugleg einföld efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
lesa ýmiss konar kunnuglegan og einfaldan texta
geta tjáð sig um einfalt efni sem hann þekkir
skrifa einfaldan texta um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á
nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fylgjast með einföldum frásögnum um almenn efni
lesa danskan texta af hæfilegu þyngdarstigi
leysa úr viðfangsefnum af þyngd sem hæfir áfanganum
þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum