Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1568722036.02

    Berlínaráfangi
    ÞÝSK2BE05
    22
    þýska
    berlínaráfangi
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Berlín er hér til umfjöllunar. Saga borgarinnar er tekin fyrir, sjónum er beint að tímabilinu frá 1945 til dagsins í dag. Tekin eru fyrir dagleg samskipti á þýsku og nemendur vinna með ýmsar heimildir á þýsku og íslensku. Undirbúningur ferðar til Berlínar, verkefni í tengslum við ferðina. Þekktustu staðir borgarinnar eru heimsóttir undir leiðsögn kennara eða fararstjóra. Samþætting tveggja námsgreina, þýsku og sögu. Nemendur greiða allan kostnað við ferðina.
    ÞÝSK1FR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mannlífi og menningu í Berlín
    • sögu borgarinnar frá 1945 og hvernig sú saga endurspeglar sögu Evrópu
    • ólíkum textagerðum á þýsku, sérstaklega úr fjölmiðlum og kvikmyndum
    • grunnorðaforða þýskunnar í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • afla sér hagnýtra upplýsinga og taka þátt í samræðum
    • skilja talað mál í algengum raunverulegum aðstæðum
    • segja frá á skýran hátt og halda stuttar kynningar á undirbúnu efni
    • skrifa samantekt um ferðina
    • nota upplýsingatækni og hjálpargögn við upplýsingaöflun og verkefnavinnu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fjalla um efni sem hann hefur kynnt sér ...sem er metið með... lokaverkefni
    • tjá eigin skoðanir og upplifun, munnlega og skriflega ...sem er metið með... lokaverkefni
    • vera fullgildur félagi í hópi og takast á við mál sem upp geta komið á ferðalagi ...sem er metið með... jafningjamati
    • meta eigið vinnuframlag og annarra ...sem er metið með... sjálfsrýni
    Lokaverkefni, þátttaka í fræðslu- og skoðunarferð til Berlínar.