Í þessum áfanga munu nemendur kynna sér enska boltann frá ýmsum sjónarhornum. Lögð er áhersla á að nemendur tjái sig skriflega og á faglegan máta Nemendur þjálfast í að nota sérhæfðan orðaforða sem tengist íþróttum. Nemendur skrifa ýmiss konar texta sem tengjast enska boltanum og halda úti þar til gerðri heimasíðu. Skólastofan tekur á sig mynd fréttastofu þar sem fram fer teymis- og einstaklingsvinna.
ENSK2MS05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins, þ.m.t. orðasamböndum og þverfaglegum orðaforða
notkun tungumálsins til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins skriflega
helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls, s.s. greinamerkjasetningu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að skilja mál sem talað er með mismunandi hreim og við mismunandi aðstæður sem og skilja algengustu orðasambönd sem eru einkennandi fyrir talað mál
lestri margs konar gerða af textum og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir því hverrar gerðar textinn er
að taka virkan þátt í samskiptum á viðeigandi hátt og beita málfari við hæfi
nota tungumálið formlega og óformlega
að skrifa margs konar texta, formlega og óformlega
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni, sem tengist sögu og iðkun knattspyrnu
tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýta á mismunandi hátt
lesa texta þar sem ákveðin viðhorf eða skoðanir eru kynnt, átta sig á tilgangi og afstöðu textahöfundar og bregðast við eða tjá skoðanir sínar munnlega eða skriflega um efni þeirra
eiga frumkvæði í samræðum og bregðast við óvæntum spurningum og athugasemdum
geta útskýrt sjónarmið varðandi efni sem er ofarlega á baugi og rakið ólík sjónarmið með og á móti
skrifa læsilega texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín