Áfanginn skal veita nemendum tækifæri til að þróa og þroska eigin rithæfileika með ýmsum æfingum og verkefnum. Nemendur skrifa marga texta í áfanganum og skoða mismunandi stílbrögð og gerðir texta. Ein af áherslum áfangans er að gefa nemendum tæki og tól til að vinna á skapandi og hugmyndaríkan hátt þar sem rödd hvers og eins fær að njóta sín. Markmið áfangans er einnig að opna heim ritlistarinnar fyrir nemendum og sýna þeim fram á þau tækifæri sem þar liggja. Sérsök áhersla er á að kenna nemendum að sækja sér kveikjur í nærsamfélag sitt svo þeir geti speglað það í riti.
LEIK2SV05 og LEIK2SL05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
nokkrum mismunandi stílum í ritlist
hversu ólíkan hátt er hægt að miðla með texta
að hugmyndakveikjur eru til staðar í okkar daglega lífi
hvernig eigin ritskoðun getur verið heftandi
þeim tjáningarmöguleikum sem ritlistin býr yfir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota eigin rödd í skrifum
ritskoða sig ekki
byggja um blæbrigðaríkan texta
skrifa stuttan leikþátt, ljóð, smásögu, sem og aðra texta
finna eigin innblástur til að skrifa texta
beita sjálfsaga í vinnubrögðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
spegla samfélag sitt í skrifum út frá tjáningarþörf og rödd sinni sem metið er með skriflegum verkefnum, umræðum, dagbók og lokaverkefni
greina leikverk, ljóð, smásögur og aðra texta út frá mismunandi stílum sem metið er með umræðum, skriflegum verkefnum og dagbók
finna hugmyndakveikjur í daglega lífinu fyrir skrifum og listsköpun sem metið er með smærri verkefnum og lokaverkefni
ritskoða ekki eigin hugmyndir heldur treysta þeim hugmyndum sem upp koma sem metið er með skriflegum verkefnum, umræðum og lokaverkefni
skrifa ljóð, leiksenur, smásögur og aðra texta sem metið er með skriflegum verkefnum og lokaverkefni
tjá sig í ræðu og riti á uppbyggilegan hátt um skrif samnemenda sinna sem metið er með umræðum og skriflegum verkefnum
Nemendur skrifa dagbók, skrifleg verkefni eru í áfanganum að lokum verður lokaverkefni.